Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf forstöðumanns bókasafns og upplýsingaþjónustu skólans vegna afleysinga fyrir núverandi forstöðumann. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs frá og með 1. október næstkomandi.
Forstöðumaður bókasafns stýrir starfsemi bókasafns og upplýsingaþjónustu skólans. Hann fer með daglega umsýslu safnsins, stýrir skipulagningu safnefnis og aðgengi, leggur fram áætlanir um uppbyggingu safnkosts, búnaðar og þjónustu, gerir fjárhagsáætlanir, og mótar heildarstefnu með tilliti til þarfa mismunandi notendahópa og deilda skólans. Forstöðumaður er einnig ritstjóri vefs Listaháskóla Íslands og starfar í nánum tengslum við aðra forstöðumenn, stjórnendur og kennara skólans.
Bókasafn Listaháskóla Íslands er sérfræðisafn á sviði þeirra listgreina sem kenndar eru við Listaháskóla Íslands og er safnið stærsta listbókasafn landsins. Helstu efnisflokkar eru myndlist, hönnun, arkitektúr, leiklist, dans, tónlist, listkennsla, lista- og menningarsaga., listheimspeki og listfræði. Meginhlutverk þess er að veita stuðning við nám, kennslu og rannsóknir við skólann. Frekari upplýsingar um safnið er að finna á heimasíðu skólans - bokasafn.lhi.is
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaranámi í bókasafns- og upplýsingafræði eða hafa annað meistaranám sem leggja má til jafns við slíkt nám. Sérstaklega verður litið til þess hvort umsækjandi geti starfað sjálfstætt, deilt verkefnum til samstarfsmanna sinna og virkjað frumkvæði þeirra. Ennfremur skiptir máli að umsækjandi hafi lifandi áhuga á listum og framgangi þeirra. Starfið er krefjandi og verður sá sem því gegnir að vera útsjónarsamur, forkur til verka, og hafa glöggt auga fyrir nýjum tækifærum, hvort sem er í rekstri eða á hinu faglega sviði.
Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila á skrifstofu skólans, Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn 10. júní næstkomandi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna þeim öllum. Fyrirspurnir um starfið, merktar “forstöðumaður bókasafns,” skulu sendar á netfang lhi@lhi.is
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með það hlutverk að sinna æðri menntun á sviði listgreina. Skólinn starfar í fimm deildum: hönnunar- og arkitektúrdeild, myndlistardeild, leiklistar- og dansdeild, listkennsludeild og tónlistardeild. Rektor skólans er Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld.


















