Sumarleyfi í Listaháskólanum

Listaháskólinn 2010 fanar

Skrifstofur Listaháskóla Íslands verða lokaðar frá og með föstudeginum 1. júlí vegna sumarleyfis. Við opnum aftur eftir sumarleyfi föstudaginn 5. ágúst kl. 9.00.

Gleðilegt sumar

Útskrift Listaháskóla Íslands

utkskrift-2011-2-hopurutskrift-2011-3

Listaháskóli Íslands brautskráði nemendur frá skólanum á hátíðarsamkomu sem haldin var á Stóra sviði Borgarleikhúsins, laugardaginn 11. júní s.l.

Með brautskráningu lauk tólfta starfsári Listaháskólans. Alls útskrifuðust að þessu sinni 138 nemendur og hafa aldrei fleiri nemendur útskrifast frá skólanum í einu. Langflestir útskrifuðust með bakkalárgráður, eða 103.   Á meistarastigi luku 35 nemendur námi, þar af 14 nemendur með meistaragráðu og 21 með diplómaprófi.

utskrift-2011-4

Auk ávarpa rektors og fulltrúa nemenda voru á dagskránni hátíðarræða og listflutningur. Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimi í Borgarnesi flutti atriði úr sýningunni Umbreyting, Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, lék fjórar prelúdíur eftir Chopin og Widmung eftir R. Schumann í umritun Franz Liszt og leikhópurinn Ég og vinir mínir flutti atriði úr sýningunni Verði þér að góðu. Gísli B. Björnsson, grafískur hönnuður, flutti hátíðarræðu.

Kynnir samkomunnar var Thelma Marín Jónsdóttir nemandi í leiklistardeild.

Hér má sjá ávarp rektors og hátíðarræðu á skólaslitum

- Skólaslit 2011 - Ávarp rektors og Skólaslit 2011-Hátíðarræða

Between keppir á Stuttmyndadögum

dans-2011-dansmynd-p_orginal

Dansmyndin Between eftir Maríu Þórdísi Ólafsdóttur er í hópi átján stuttmynda sem valin hefur verið til að keppa á stuttmyndadögum 2011 sem fram fara í Bíó Paradís dagana 15.-16. júní næstkomandi. Áður var dansstuttmynd Sigríðar Soffíu Níelsdóttir, Uniform Sierra, valin til þátttöku árið 2008 en skemmst er að minnast þess að hún hlaut áhorfendaverðlaun á hátíðinni. Báðar myndirnar voru framleiddar af Listaháskóla Íslands

Veitt verða þrenn verðlaun fyrir bestu myndirnar, 100.000 kr. fyrir fyrsta sætið, 75.000 kr. fyrir annað sætið og 50.000 kr. fyrir þriðja sætið, auk þess sem áhorfendur veita sín verðlaun. Líkt og venja er Sjónvarpið sýna þær myndir sem hljóta verðlaun. Þá verður leikstjóra þeirrar myndar sem hlýtur fyrsta sætið, boðið á Kvikmyndahátíðina í Cannes að ári þar sem myndin tekur þátt í hinu svokallaða Short Film Corner.

María Þórdís Ólafsdóttir skrifaði nýverið undir dreifingarsamning við International Music + Media Centre í Austurríki sem tekið hefur að sér dreifingu á Between á danshátíðar, kvikmyndahús og viðburði í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu undir formerkjum DanceScreen.

“Between” var sýnd í Kaupmannahöfn á ScreenMoves hátíðinni  í lok apríl s.l. Í kjölfarið verður myndin svo sýnd í fjölmörgum borgum landsins s.s. Kolding, Århus, Sorö og Roskilde. Between var áður sýnd á Cinedance Festival í Amsterdam í desember 2010 og á “Tanz Nite” í Graz í Austurríki þann 23. mars s.l.

Dansmyndin Between fjallar um hvað það er þunn lína á milli alls, milli raunveruleikans og draums, á milli sturlunar og þess að vera heill. Um hvernig við reynum að halda jafnvægi á þessari línu en missum stöðugt jafnvægið. Í myndinni leikur höfundur sér með þyngdaraflið og þyngdarleysið og öll lögmál um það sem við höldum að sé satt og gilt eru brotin.

Dansmyndin Between fjallar um hvað það er þunn lína á milli alls, milli raunveruleikans og draums, á milli sturlunar og þess að vera heill. Um hvernig við reynum að halda jafnvægi á þessari línu en missum stöðugt jafnvægið. Í myndinni leikur höfundur sér með þyngdaraflið og þyngdarleysið og öll lögmál um það sem við höldum að sé satt og gilt eru brotin.

Between var frumsýnd þann 20. maí 2010 en myndin er ein af tíu dansmyndum sem framleiddar voru af Listaháskóla Íslands í samstarfi við MyPocket Productions á dansmyndanámskeiði 2. árs samtímadansbrautar skólans. Umsjónarmaður námskeiðsins var Helena Jónsdóttir kvikmyndagerðakona.

Dagskrá frá útskriftartónleikum Listaháskólans á Rás 1

2011-tonlist-utskriftarnemendur-1

Rás 1 - fimmtudagur 9. júní kl. 19.00 - 21.30

Frá útskriftartónleikum tónlistarnemenda Listaháskóla Íslands 2011

Samantekt frá  tólf útskriftartónleikum tónlistarnemenda Listaháskóla Íslands sem fram fóru í apríl og maí síðastliðnum. Þar komu fram ungir einleikarar og frumflutt voru ný tónverk úr smiðju nýrra íslenskra tónskálda.

Í þættinum hljóma m.a. kaflar út tónverkum eftir  Þórunni Grétu Sigurðardóttur, Einar Sverri Tryggvason, Erlu Axelsdóttur, Brynhildi Oddsdóttur, Völu Gestsdóttur, Kristján Guðjónsson og Hafstein Þórólfsson.  Einnig koma fram fiðluleikararnir Sigrún Harðardóttir og Jane Ade Sutarjo, Arve Eiriksson hornleikari og söngkonurnar Ingunn Gyða Hrafnkelsóttir og Inga Dóra Stefánsdóttir.

Flutt verða brot úr viðtölum við útskriftarnemendur en kynnir er Harpa Jóhannsdóttir. Hljóðritun tónleikanna var í höndum nemenda í hljóðtækninámi Sýrlands og Tækniskólans, en dagskráin er samstarfsverkefni Listaháskólans og Sýrlands.
Umsjón með dagskránni hafa Harpa Jóhannsdóttir, Páll Sveinn Guðmundsson og Kristinn Sigurpáll Sturluson.

Störf fagstjóra í fræðigreinum laus til umsóknar

Listaháskólinn 2010 fanar

Listaháskólinn auglýsir eftir umsóknum um störf fagstjóra fræðigreina í tónlist, myndlist og hönnun/arkitektúr. Fagstjórar fræðigreina skipuleggja og fara með umsjón fræðikennslu innan viðkomandi deildar og bera ábyrgð ásamt deildarforseta á faglegri þróun námsins. Störfin fela í sér kennslu, stjórnun náms og stefnumótun, auk rannsókna. Fagstjórar fræðigreina verða metnir til starfstitils lektors.

Hæfniskröfur:

  • Meistarapróf.
  • Kennslureynsla í háskóla í fræðigreinum lista, miðlunar, og/eða menningar.
  • Þekking á háskólastarfi og kunnátta í þróun náms  á efstu menntastigum.
  • Reynsla af rannsóknum er æskileg.

Áhersla er lögð á að fagstjórinn búi yfir þekkingu og reynslu af þverfaglegu starfi, og geti leitt verkefni og samstarf sem fer fram á milli námsbrauta og deilda skólans. Við mat á umsóknum verður jafnframt litið til hæfni umsækjanda til frumkvæðis og sjálfstæðis í starfi, og hvernig ætla megi að hann falli inn í samstarfshópinn sem fyrir er á sviðinu.

Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um námsferil og störf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar. Umsækjandi skal gera skýra grein fyrir kennslustörfum sínum og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf. Þá er óskað eftir að umsækjandi leggi fram greinargerð um hugmyndir sínar um uppbyggingu fræðimenntunar innan skólans. Afrit af prófskírteinum og öðrum staðfestingum varðandi menntun skulu fylgja umsókn.

Rektor ræður í störfin í samráði við deildarforseta og stjórn að undangengnu mati dómnefndar sem dæmir um hæfi umsækjenda í samræmi við sérstakar reglur um veitingu akademískra starfa. Reglurnar eru birtar á heimasíðu skólans. Umsóknir skulu merktar viðkomandi starfi og sendar rektor, Hjálmari H. Ragnarssyni, Listaháskóla Íslands, Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en 20. júní næstkomandi.