

Rektor Listaháskólans hefur ráðið Mariju Scekic og Sveinbjörgu Þórhallsdóttur til starfa við leiklistar- og dansdeild skólans. Marija er ráðin sem háskólakennari í samtímadansi með starfsheiti lektors, og Sveinbjörg sem aðjúnkt í líkamsþjálfun og dansi, en hún hefur jafnframt á sínum höndum fagstjórn dansbrautar.
Alls bárust sex gildar umsóknir um starf háskólakennara í dansi, en staðan var auglýst á alþjóðlegum vettvangi. Sú krafa var gerð að umsækjandi skyldi vera “skapandi listamaður, s.s. danshöfundur eða dansari, og hafa kennt við viðurkennda listaskóla.” Sérstök dómnefnd lagði mat á umsóknir í samræmi við reglur skólans um ráðningar akademískra starfsmanna. Fjórir umsækjendur voru dæmdir hæfir til að gegna starfinu. Þrír þeirra voru boðaðir í ítarleg viðtöl.
Marija Scekic starfar og býr í Zagreb í Króatíu þar sem hún hefur unnið að listsköpun og kennslu, en hún er listrænn stjórnandi Histeria Nova, sem m.a. stendur fyrir tilraunum og á sviði dans og vísinda. Hún hefur skapað fjölda dansverka, sem hafa verið sýnd í heimalandi hennar og víðar um Evrópu og í Kanada, og unnið til verðlauna fyrir listsköpun sína, s.s. Verðlaun samtaka krótatískra sviðslistamanna 2006 fyrir bestu danssýningu og dansverk ársins fyrir verkið Sjena. Meðal annarra verka hennar má nefna Modulation Shape 2 frá 2007 og Human Error frá 2009.
Marija hefur að baki fjölbreytta menntun í heimalandi sínu sem dansari, bæði í klassískum listdansi og í nútímadansi. Hún stundaði framhaldsnám í samtímadansi og danssmíðum á árunum 1995 - 1999 við Concordia háskólann í Montreal í Kanada og spuna og danssköpun við L’Ecole de Danse de Quebec, auk þess sem hún hefur sótt fjölda námskeiða bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, til að kynna sér mismunandi danstækni og aðferðir.
Eftir að hún snéri aftur til Króatíu hefur hún kennt dans og danssmíðar í þremur mismunandi dansskólum með áherslu á líkamsbeitingu og sviðsflutning sem hluta af daglegri þjálfun dansara. Þess utan hefur hún staðið fyrir ýmsum vinnustofum og námskeiðum, m.a. í butoh í samstarfi við Tadashi Endo, og stundað umfangsmikil rannsóknarstörf í tengslum við danssköpun sína.
Að mati dómnefndar Listaháskólans er Marija Scekic “dugmikill, leitandi og framsækinn listamaður sem hefur miklu að miðla.” Með ráðningu Mariju í starf lektors er í fyrsta sinn á Íslandi ráðið i akademíska stöðu í dansi.
Sveinbjörg Þórhallsdóttir útskrifaðist sem dansari frá Alvin Ailey American Dance Center í New York árið 1995 og lauk meistaragráðu í danssmíðum frá Fontys University í Hollandi 2007. Hún hefur viðtæka reynslu jafnt sem dansari, danshöfundur og kennari, m.a. verið stundakennari við leiklistar- og dansdeild Listaháskólans.
Sveinbjörg er annar stofnandi Panic Productions sem sérhæfir sig í að skapa óhefðbundin dansleikhúsverk í samstarfi við erlenda listamenn úr ólíkum listgreinum, en verk hópsins hafa verið sýnd víða um Evrópu við góðan orðstír. Meðal verkefna hans má nefna No, He Was White (2005), og Private Dancer (2008).
Dansverk eftir Sveinbjörgu eru fjölmörg, m.a. Rauðar Liljur (2005), Hver ertu stúlkukind? (2005), Rokstelpan (2002), Elasticity (2006), og Skekkja, sem hún samdi í samvinnu við Íslenska dansflokkinn og var tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2009. Sveinbjörg var listrænn stjórnandi útskriftarhóps dansbrautar í verkinu How did you know Frankie?, sem var frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu vorið 2011. Þá hefur hún unnið sem danshöfundur í fjölda leiksýningum og söngleikjum, s.s. í Edith Piaf og Legi í Þjóðleikhúsinu, og nú síðast í Enron hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Sveinbjörg starfaði lengi sem kennari hjá Listdansskóla Íslands og stjórnaði nútímadansbraut skólans um tíma. Hún er einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival og er formaður Samtaka um Danshús sem reka Dansverkstæðið, vinnustofur fyrir danshöfunda.
—
Leiklistar- og dansdeild Listaháskólans starfar á þremur brautum: leikarabraut, fræði og framkvæmd, og dansbraut. Nemendur eru teknir inn annaðhvert ár. Dansbrautin tók til starfa haustið 2005, fyrst sem eins árs diplómanám en síðar sem fullt þriggja ára nám til bakkalárgráðu. Tveir árgangar nemenda hafa útskrifast með BA gráðu í dansi.