Nemar frá tónlistardeild á námskeiði og með tónleika á Ísafirði

tonlistarnemarlhi

Í gærkvöldi buðu nemar frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands Ísfirðingum og nágrönnum upp á tónleika í tónlistarhúsinu Hömrum. Á tónleikunum voru m.a. frumflutt verk, sem samin voru á námskeiðinu Skapandi tónlistarmiðlun sem stendur yfir í Hömrum á vegum Listaháskóla Íslands þessa dagana.

Námskeiðið fer fram á Ísafirði og er árviss viðburður sem stendur yfir frá mánudegi til föstudags. Það sækja fyrsta árs nemendur í grunnnámi hjá tónlistardeild auk skiptinema og og eru því 23 nemendur á námskeiðinu að þessu sinni. Í námskeiðinu er fengist við skapandi tónlistarmiðlun og vinna nemendur LHÍ með nemendum frá Tónlistarskóla Ísafjarðar og sameinast þar öll skólastig tónlistarnáms allt frá yngsta stigi upp í meistarastig. Unnið er undir handleiðslu Jóns Gunnars Biering sem útskrifaðist nýlega með meistaragráðu frá tónlistardeild LHÍ af brautinni Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf (e. Joint Music Master for New Audiences and Innovative Practice).

Hádegisfyrirlestur - vinnustofan - Birgir Snæbjörn Birgisson

birgirsnbi_v3okt

Hádegisfyrirlestur í myndlistardeild mánudaginn 3. október kl 12:30 í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91 Reykjavík

Birgir Snæbjörn Birgisson fjallar um myndsköpun sína í fyrirlestraröðinni Vinnustofan við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og hefjast klukkan 12. 30 í húsnæði deildarinnar að Laugarnesvegi 91 í Reykjavík.

Birgir Snæbjörn hefur á síðustu árum unnið að stórum og viðamiklum myndaröðum þar sem magn og endurtekning er ríkur þáttur í upplifun verkanna. Má þar meðal annars nefna myndaraðirnar „Ljóshærðir hjúkrunarfræðingar”, „Ljóshærð ungfrú heimur 1951-”, „Fallegu Parísarkonurnar” og „Ljóshærðir listamenn”. Magnið ýtir undir merkingu verksins en endurtekningin afhelgar það og opinberar í leiðinni.  Í fyrirlestrinum mun Birgir meðal annars kynna gerð nýrrar myndaraðar sem ber heitið „The White House project”. Birgir mun taka þátt í sýningunni The Pleasure Principle, sem opnar föstudaginn 7. október í Kling og Bang galleríi, með Jukka Korkeila og Marcus Eek, en sýningarstjóri sýningarinnar er Mika Hannula.

Vinnustofan hefur bæst við hina óræðu og efnislausu byggingu myndlistardeildar, sem fyrir hýsti Bakherbergið og Viðbygginguna.

Vinnustofan er íverustaður stöðugrar gerjunar, ígrundunar, tilviljanna, mistaka og úrvinnslu. Í haust munu ólíkir myndlistarmenn leiða viðstadda í gegnum samtal hugar og handa, vinnuferli og aðferðir, í fullvissu jafnt sem efa. Allir eiga þeir sér sína vinnustofu, hvort sem hún er aðgreint rými sem slík ellegar horn á stofuborði, vinnustofa flakkarans sem gerir alla staði og engan að sínum eða skissubók í hendi.

Allir velkomnir
Myndlistardeild LHÍ.

Katariina Liimatainen - masterklass og tónleikar

focus-pianotrio049focus-pianotrio048

Dagana 27.-30. september er finnskur gestakennari, píanóleikarinn Katariina Liimatainen við LHÍ.  Hún heldur masterklass píanókennslu í Sölvhóli föstudaginn 30. september milli kl 13.00 og 16.00.

Einnig spilar tríóið hennar; Trio Focus, á tónleikum í Sölvhóli laugardaginn 1. október kl 16.00.  Tríóið skipa; ásamt henni, Liisi Nuora-Kapanen á fiðlu og Juha Malmivaara á selló.  Leikin verða verk eftir J.Sibelius, Þórð Magnússon, Mikko Heiniö og A. Arenski.

Frír aðgangur, allir velkomnir

Arkitektanemendur í námsferð til Osló

arkitekta-oslo
Annars árs nemendur í arkitektúr við LHÍ eru nýkomnir heim frá 11 daga dvöl við hönnun, smíði og byggingu sýningarsvæðis Arkitekturfestivalsens í Osló. Arkitektastofan Rintala Eggertson Architects hlaut það verkefni að hanna sýningarsvæðið fyrir hátíðina sem opnar í dag, 23. september. Nemendur í hönnun og arkitektúr frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finlandi unnu undir leiðsögn arkitektanna Dags Eggertssonar og Sami Rintala að byggingu sýningarsvæðis fyrir hátíðina. Hátíðin er haldin á sýningarsvæðinu Vulkan í tilefni af 100 ára afmæli norska Arkitektúrfélagsins. Frekari upplýsingar um hátíðina má finna á vef Arkitekturfestivalen.

Myndir frá ferðinni má finna hér.

Vinnustofan - opnir hádegisfyrirlestrar í myndlistardeild hefjast 26. september

anna_og_olga_garur

Opnir hádegisfyrirlestrar við myndlistardeild Listaháskóla Íslands hefja göngu sína á ný mánudaginn 26. september, undir yfirskriftinni Vinnustofan.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og hefjast klukkan 12. 30 í húsnæði deildarinnar að Laugarnesvegi 91 í Reykjavík. Þeir eru 45-60 mínútna langir.

Síðastliðið haust var fyrirlestraröðinni Bakherberginu hrint úr vör, þar sem myndlistarmenn vörpuðu ljósi á uppsprettu verka sinna.
Viðbyggingin tók við með sínum óvæntu skurðarpunktum milli fræða og myndlistar.
Vinnustofan hefur bæst við hina óræðu og efnislausu byggingu myndlistardeildar - íverustaður stöðugrar gerjunar, ígrundunar, tilviljana, mistaka og úrvinnslu.

Ólíkir myndlistarmenn munu leiða viðstadda í gegnum samtal hugar og handa, vinnuferli og aðferðir, í fullvissu jafnt sem efa.
En allir eiga þeir sér sína vinnustofu, hvort sem hún er aðgreint rými sem slík ellegar horn á stofuborði,
vinnustofa flakkarans sem gerir alla staði og engan að sínum eða skissubók í hendi.
Listamennirnir sem tala um vinnustofuna þann 26. september eru þær Anna Hallin og Olga Bergmann,
en sýningu þeirra “GÁRUR” í  Kling og Bang galleríi á Hverfisgötu lýkur sunnudaginn 25. sept.
Nánar um listamennina: http://this.is/ahallin/ og  http://this.is/olga/

Allir velkomnir.
Myndlistardeild LHÍ