
Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands hefur hafið æfingar á verkinu Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í þýðingu Heiðars Sumarliðasonar. Verkið er glænýtt en það var frumsýnt árið 2010 í National Theatre í London við góðar undirtektir og var Bartlett í kjölfarið hampað sem ferskri rödd í bresku leikhúslífi.
★★★★ -Daily Express, Daily Telegraph, Evening Standard, Guardian, Independent
“Leikrit fullt af uppákomum og nýungum… staðfestir að höfundur verksins Mike Bartlett er einn af okkar mest spennandi leikritaskáldum” -Evening Standard
Í þessari mögnuðu rússíbanaferð þeytumst við um í tíma og rúmi frá 1968 til 2525 og aftur til baka. Hressileg umfjöllun um það sem framtíðin ber í skauti sér og þær miklu hamfarir sem ganga yfir samfélög okkar í dag. Burlesque fatafellur, martraðir, efnahagshrun, mannfjöldasprengingar og allsherjar paranoia. Saga af snörpum hræringum í lífi þriggja systra sem reyna af öllum mætti að bjarga sér og sínum úr hamförum og framförum nútímans á meðan faðir þeirra, heimsfrægur vísindamaður, boðar heimsendi.
Ögrandi uppákomur, húmor og hráar tilfinningar.
Jarðskjálftar í London er annað verkefni Nemendaleikhússins í ár, en nýlokið er sýningum á fyrstu uppfærslu vetrarins; Á botninum eftir Maxim Gorkí, sem fékk mjög góðar viðtökur.
Leikstjóri er Halldór E. Laxness, leikmynd og búningar eru hönnun Tinnu Ottesen, hljóðmynd er í höndum Georgs Kára Hilmarssonar, lýsingu annast Jóhann Friðrik Ágústsson, danshöfundur er Brogan Davison og myndbönd eru hönnuð af Brynju Björnsdóttur.
Frumsýning er föstudaginn 2. desember 2011.
Nemendaleikhúsið í vetur skipa: Hjörtur Jóhann Jónsson, Kolbeinn Arnbjörnsson, Olga Sonja Thorarensen, Ólöf Haraldsdóttir, Pétur Ármansson, Saga Garðarsdóttir, Sara Margrét Nordahl, Sigurður Þór Óskarsson, Snorri Engilbertsson og Tinna Sverrisdóttir.
Æfingar hjá Nemendaleikhúsinu eru frá kl. 10 - 16 alla virka daga.