Nemendaleikhúsið frumsýnir Jarðskjálfta í London

jardskjalftarilondonvefkort

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands sýnir Jarðskjálfta í London eftir Mike Bartlett í leikstjórn Halldórs E. Laxness

Föstudaginn 2. desember næstkomandi frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands verkið Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í Smiðjunni, Leikhúsi Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13.

Verkið var frumsýnt í National Theatre í London árið 2010 við frábærar undirtektir og var Bartlett í kjölfarið hampað sem ferskri rödd í bresku leikhúslífi.  Sýningin er hressileg umfjöllun um það sem framtíðin ber í skauti sér og þær miklu hamfarir sem ganga yfir samfélög okkar í dag.  Sögð er saga af snörpum hræringum í lífi þriggja systra sem reyna af öllum mætti að bjarga sér og sínum úr hamförum og framförum nútímans á meðan faðir þeirra, heimsfrægur vísindamaður, boðar heimsendi.  Burlesque fatafellur, martraðir, pólitísk spilling, mannfjöldasprengingar og allsherjar paranoia!

Í þessari mögnuðu rússíbanaferð þeytumst við um í tíma og rúmi frá 1968 til 2525 og aftur til baka. Ögrandi uppákomur, húmor og umfjöllunarefni sem á erindi við alla í dag.  Sýningin fléttar saman tónlist, dans, og myndbandsverk sem á spennandi hátt fylla alla fleti leikhússins.

Verkið er nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi í nýrri þýðingu Heiðars Sumarliðasonar og leikstjórn Halldórs E. Laxness.  Halldór hefur leikstýrt fjölda sýninga allt frá árinu 1981 bæði hérlendis og erlendis og er hann einnig listrænn stjórnandi The Festival of New European Opera í Frakklandi og stofnandi Paradox hópsins í Los Angeles.  Leikmynd og búningar eru hönnun Tinnu Ottesen og myndbönd fyrir verkið eru unnin af Brynju Björnsdóttur.  Hljóðmynd er í höndum Georgs Kára Hilmarssonar, lýsingu annast Jóhann Friðrik Ágústsson og danshöfundur er Brogan Davison.

Nemendaleikhúsið í vetur skipa: Hjörtur Jóhann Jónsson, Kolbeinn Arnbjörnsson, Olga Sonja Thorarensen, Ólöf Haraldsdóttir, Pétur Ármannsson, Saga Garðarsdóttir, Sara Margrét Nordahl, Sigurður Þór Óskarsson, Snorri Engilbertsson og Tinna Sverrisdóttir.

Sýningafjöldi er takmarkaður og er því ráðlegt að tryggja sér miða í tíma.  Miðasala fer fram á midasala@lhi.is, í síma 895 6994 og á midi.is.  Miðaverð er einungis 1500 krónur.

Hádegisfyrirlestur tónlistardeildar - Kristinn Örn Kristinsson

kristinnornk

Kristinn Örn Kristinsson heldur hádegisfyrirlestur við tónlistardeild LHÍ í Sölvhóli föstudaginn 2. desember kl. 12-12:45.

„Eitt og annað“

Spjall um eitt og annað er varðar störf og umhverfi tónlistarmanna, meðleikara, kennara og uppalenda. Komið verður inn á eiginleika góðra kennara og hlutverk þeirra. Umhverfið hér og umhverfið þar, umhverfið fyrr og umhverfið nú.

Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari hefur starfað við kennslu, meðleik og stjórnunarstörf við Tónlistarskólann á Akureyri, Tónlistarskólann í Reykjavík, Söngskólann í Reykjavík, Tónlistarskóla Íslenska Suzukisambandsins, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Allegro Suzukitónlistarskólann. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann á Akureyri og í Reykjavík, og framhaldsnám í Bandaríkjunum. Auk þess hefur hann réttindi til kennsluþjálfunar Suzukikennara og diplomu frá Margmiðlunarskólanum. Gaf út bókina Suzuki tónlistaruppeldi og hljómdiskinn Píanólögin okkar.

Næstu hádegisfyrirlestrar í tónlistardeild:

20. janúar                                             Egill Viðarsson

3. febrúar                                             Örn Elías Guðmundsson

17. febrúar                                           Njörður Sigurjónsson

2. mars                                                 Kristinn Sigmundsson

16. mars                                               Greta Salóme Stefánsdóttir

23. mars                                               Magnús Jensson

30. mars                                               Svanlaug Jóhannsdóttir

13. apríl                                               Hafdís Bjarnadóttir


Starf umsjónarmanns vídeóvers

Listaháskólinn 2010 fanar

Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf umsjónarmanns vídeóvers myndlistardeildar. Vídeóverið er staðsett í húsnæði deildarinnar í Laugarnesi.

Umsækjandi skal hafa lokið sérmenntun á sviði myndlistar og hafa góða þekkingu og reynslu af hverslags tækjum og tækni sem notuð eru við gerð og framsetningu verka á sviði vídeó, hljóðs og gagnvirkni innan myndlistar. Hann þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í úrlausn ólíkra verkefna.

Umsjónarmaður aðstoðar nemendur og kennara við lausn verkefna. Hann kennir tækninámskeið og hefur umsjón með daglegum rekstri vídeóvers, viðhaldi tækja og innkaupum í samráði við deildarforseta.

Leitað er að fjölhæfum einstaklingi sem getur miðlað af þekkingu sinni, er lipur í samskiptum og á auðvelt með að starfa með öðrum.

Umsókn skal fylgja yfirlit um námsferil og störf umsækjanda og afrit af prófskírteinum. Umsækjendur skulu láta fylgja nöfn og símanúmer tveggja aðila sem leita má til um meðmæli. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 15. febrúar 2012.

Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skilað á skrifstofu skólans, Skipholti 1, 105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 5. desember n.k. Fyrirspurnir um starfið skulu sendar á netfang deildarforseta myndlistardeildar: kristjan@lhi.is

Innangarðs - myndlistarnemar sýna í görðum Háskólans í Reykjavík

gjorningurhronnsmall

Miðvikudaginn 30. Nóvember næstkomandi kl. 16 opnar sýning á verkum myndlistarnema frá Listaháskóla Íslands í görðum innan Háskólans í Reykjavík. Garðarnir sem sýnt er í eru opin rými innan byggingarinnar sem voru byggðir sem sýningarrými fyrir myndlist en hafa ekki verið nýttir til sýningarhalds fyrr en nú. Nemendurnir vinna verk sín inn í inni garða Venusar, Mars og Úranusar, sem eru hinar þrjár álfur byggingarinnar. Verkin eru fjölbreytt að gerð og efni en auk innsettninga og skúlptúra verða fluttir gjörningar á opnun.

Sýnendur eru:

Adrian Galindo Rami

Auður Ómarsdóttir

Hrönn Gunnarsdóttir

Karin Kurzmeyer

Katrín Eyjólfsdóttir

Lola Bezemer

Lukka Sigurðardóttir

Magnús Skúlason

Ólöf Rún Benediktsdóttir

Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir

Sýningin er unnin undir leiðsögn myndlistamannsins Halldór Ásgeirssonar.

Allir velkomnir!

Plakat með dagskrá

Masterklass í tónlistardeild: Barokkdansar

tomlinsonsingledance

Föstudaginn 25. nóvember kl. 13:30 verður haldinn masterklass í Sölvhóli þar sem Ingibjörg Björnsdóttir listdanskennari sýnir barokkdansa og kennir grunnspor þeirra.

Ingibjörg Björnsdóttir var nemandi í Listdansskóla Þjóðleikhússins frá 1953-1960 og dansaði í fjölmörgum sýningum á vegum leikhússins á þessum árum. Ingibjörg stundaði nám við Scottish Ballet School í Edinborg 1960 - 1963 og lauk Advanced prófi frá Royal Academy of Dancing (Nú Royal Academy of Dance), prófi í nútímalistdansi frá Imperial Society of Teachers of Dancing, auk þjálfunar í listdanskennslu nemenda frá þriggja ára aldri. Ingibjörg var kennari við Listdansskóla Þjóðleikhússins og dansari í sýningum leikhússins frá 1964. Hún var skólastjóri sama skóla frá 1977 til ársins 1990 þegar skólinn varð að sjálfstæðri stofnun og skólastjóri Listdansskóla Íslands frá 1990 - 1997. Ingibjörg var danshöfundur í mörgum sýningum Þjóðleikhússins á sínum starfsárum þar og samdi nokkur verk fyrir Íslenska dansflokkinn. Auk þess hefur hún samið dansa fyrir ýmsa leikhúshópa, tónlistarhópa (endurreisnar- og barokkdansa) og fyrir sjónvarp. Hún hefur setið í íslenskum og norrænum nefndum og stjórnum tengdum leiklist og dansi. Hún lauk BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og MA í sagnfræði frá sama skóla árið 2007. Ingibjörg vinnur nú að ritun á sögu sviðlistardans á Íslandi auk þess að kenna listdans.

Allir velkomnir.