Tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna Forseta Íslands

Myndin er frá afhendingu Nýsköpunarverlauna forseta Íslands í febrúar s.l. þar sem LHÍ átti 3 af 6 verkefnum sem komust í lokaúrtakið, og hlaut einn hópurinn verðlaunin, eins og kunnugt er.

Myndin er frá afhendingu Nýsköpunarverlauna forseta Íslands í febrúar s.l. þar sem LHÍ átti 3 af 6 verkefnum sem komust í lokaúrtakið, og hlaut einn hópurinn verðlaunin, eins og kunnugt er.


Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna hefur valið bestu verkefni sem unnin voru á árinu 2011 til að keppa um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2012.

Megin tilgangur sjóðsins er að styrkja háskólanema í grunn- og meistaranámi til sumarvinnu við nýsköpun og rannsóknir.  Tæplega 500 umsóknir um styrki til sumarvinnu við nýsköpun og rannsóknir bárust í sjóðinn í ár, en 131 verkefni þar sem 190 nemendur lögðu til vinnu í 493 mannmánuði voru styrkt.

Lokapunktur og jafnframt hápunktur ferilsins er úthlutun Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands til þeirra verkefna sem þykja skara fram úr. Að þessu sinni bárust 111 skýrslur til sjóðsins sem koma til greina til verðlaunanna. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna velur þau verkefni sem tilnefnd eru sem úrvalsverkefni og keppa um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands að ráðleggingum fagráða sjóðsins. Verðlaunaafhendingin fer fram á Bessastöðum í febrúar næstkomandi.

Af þeim 21 verkefni sem komast í flokkinn „bestu verkefnin” eru 6 ættuð úr LHÍ. Það verður að teljast frábær árangur fyrir skóla sem hefur um 480 nemendur, þar af langflesta á BA stigi.  Verkefnin sem tengjast LHÍ eru eftirfarandi:

Aðgengileikakort fyrir hreyfihamlaða. Nemendur eru: Axel Kaaber, Jón Ingi Einarsson, Lúðvík Snær Hermannsson og Snorri Eldjárn Snorrason.  Þrír þeirra eru nemendur við hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ (tveir í grafískri hönnun og einn í arkitektúr).  Leiðbeinandi var Snorri Tryggvason BA í arkitektúr.

Flothetta. Nemandi er Unnur Valdís Kristjánsdóttir vöruhönnuður frá LHÍ. Leiðbeinendur voru Tinna Gunnarsdóttir aðjúnkt og fagstjóri í vöruhönnun við LHÍ og Örn Daníel Jónsson prófessor við HÍ.

Gagnagrunnur byggður á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar fyrir listgreinakennslu. Nemendur eru Ásdís Spanó og Hugrún Þorsteinsdóttir við listkennsludeild LHÍ - báðar útskrifaðar. Leiðbeinandi var Ásthildur Björg Jónsdóttir lektor við listkennsludeild LHÍ.

Greining prentgripa fyrir safneignir, bókarkápur og veggspjöld.  Nemandi er Arna Rún Gústafsdóttir grafískur hönnuður. Leiðbeinendur voru Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri hönnun og Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands.

Eyðibýli á Íslandi: Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í AusturSkaftafellssýslu, VesturSkaftafellssýslu og Rangárvallasýslu sumarið 2011. Nemendur eru: Arnþór Tryggvason, Árni Gíslason, Birkir Ingibjartsson, Steinunn Eik Egilsdóttir og Yngvi Karl Sigurjónsson.  Fjórir eru nemendur úr hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ. Leiðbeinendur voru Sigbjörn Kjartansson arkitekt hjá Glámu-Kími arkitektum og Gísli Sverrir Árnason sagnfræðingur hjá R3 ráðgjöf ehf.

Sauðskinsskór í nútímabúning - Nemandi er Gígja Ísis Guðjónsdóttir fatahönnuður frá LHÍ.  Leiðbeinandi var Linda Björg Árnadóttir aðjúnkt og fagstjóri í fatahönnun við hönnunar- og arkitektúrdeild LHÍ.

Árangur nemenda LHÍ verður að teljast glæsilegur, 6 verkefni af 21 í úrvalsflokknum „bestu verkefni” sem samsvarar tæplega 29% hlutfalli.  Við óskum öllu þessu fólki til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Jóhann Sebastian Bank á ströndinni

800_landsbankinn_mg_0102-2800_landsbankinn_mg_0088-2

Nemendur í evrópsku meistaranámi í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi (NAIP eða New Audiences and Innovative Practice) unnu tilraunaverkefni með það markmið að leiðarljósi að bjóða upp á tónlist við óvenjulegar aðstæður. Eftir ítarlega vettvangskönnun urðu þrír bankar í miðborg Reykjavíkur fyrir valinu. Bankarnir tóku hópnum opnum örmum en sumir slógu ákveðna varnagla sem lausnir voru fundnar á, í fyllingu tímans. Í flestum tilfellum var greinilegt að talsmönnum bankanna var verulega mikið í mun að stofnun þeirra fengi jákvæða athygli og tóku umleitan hópsins fagnandi.

Stór hluti af tilrauninni fólst í að kanna viðbrögð almennra viðskiptavina auk starfsfólks, og enn fremur að nemendurnir fengju tækifæri til að láta slag standa við óvenjulegar aðstæður með krefjandi tónlistargjörning án þess þó að stuða fólk eða valda óþægindum. Þess vegna var mjög mikilvægt að uppákoman væri ekki kynnt og ekki búið að gefa upp stað eða stund. Einnig var ákveðið að festa viðburðinn á filmu til skoðunar og lærdóms. Undirliggjandi spenna og dulúð umlék því Jóhann Sebastian Bank á ströndinni.

Vegferðin hófst í Landsbanka við Austurstræti. Þar sá sérstakur ljósmyndari bankans um myndatöku, þar sem Listaháskólateyminu var ekki heimilt að mynda inni í bankanum, en Óskar ljósmyndari teymisins, handlék snjallsímann af einskærri snilld. Atriði úr óperunni Í Skálholti, sem er í smíðum, spratt fram á miðju gólfi á gjaldkerasvæðinu. Fuglasöngur og ljóðaflutningur umbreytti Landsbankanum í sögusvið 17. aldar þegar Alexandra Chernishova sópran, Pamela De Sensi flautuleikari og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona fluttu inngang verksins. Þar næst birtist farsakennd uppfærsla á bankaráni uppbyggð af nokkrum óperuperlum og Abbalögum, í Arion banka í næsta nágrenni, þar sem trióið Opera In Disguise, undir forystu píanóleikarans Beth Elin Byberg, nýtti sér m.a. öryggisvörð og útibússtjóra bankans í aukahlutverkin. Sópransöngkonurnar Berit Mæland og Isabel Piganiol komu sérstaklega frá Kaupmannahöfn til að færa óperuna nær hinu daglega lífi fólks í Reykjavík. Í anddyri Íslandsbanka í Lækjargötu fór fram gjörningurinn Á ströndinni þar sem frumsamin tónlist Völu Gestsdóttur, innblásin af fjórum strandaljósmyndum eftir Þormar Melsteð, sem héngu uppi á vænghurðum, hljómaði sérstaklega fyrir notendur hraðbankans og sendi róandi óm og takt hafsins inn í andrúmsloftið. Þegar inn í bankann var komið hljómaði lifandi lyftutónlist Mugisons mishátt eftir því hvort lyftan var opin eða lokuð eða  stödd á efri hæðum. Smám saman tóku gestir og starfsfólk að gera sér ferðir milli hæða og fengu þá einkatónleika á vegferð sinni.

Ljósmyndir: Pablo E. Santos

Myndband: Óskar Hallgrímsson

Jólamarkaður nemenda

2011_nflhi_jolamarkadur

Dagana 21. - 23. desember munu nemendur úr Listaháskóla Íslands standa fyrir jólamarkaði í Kaffistofunni Hverfisgötu 42.  Til sölu verða verk eftir nemendur myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar.

Söluvarningurinn er jafn fjölbreyttur og flóra skólans, allt frá ljósmyndum, málverkum og silkiþrykkum yfir í fatnað, töskur og ermahnappa.

Markaðurin verður opin:

21. og 22. desember frá kl. 13:00 til 18:00

23. desember frá kl. 12:00 til 20:00

Heitt verður á könnunni og posi á staðnum. Þetta er fullkomið tækifæri til þess að finna eitthvað í jólapakkann eða einfaldlega fjárfesta í list og hönnun!

Mikil aðsókn í nám á leikarabraut

leikaranám

Alls höfðu borist 173 umsóknir um nám á leikarabraut þegar umsóknarfrestur rann út í síðustu viku.

Við inntöku í leikaranámið er skipuð sérstök inntökunefnd sem velur nemendur úr hópi umsækjenda, valið byggir á inntökuprófi og viðtölum. Ferlið er eftirfarandi:

Mat á umsóknum með tilliti til formlegra skilyrða
•Inntökupróf 1. þrep (skipt í hópa, 1/2 dagur hver hópur)
•Inntökupróf 2. þrep úrtakshópar (1/2 dagur hver hópur)
•Inntökupróf 3. þrep, úrtakshópur (3 dagar)

Inntökupróf leikarabrautar:

1. þrep 9. - 11. janúar 2012
2.
2. þrep 12.- 13. janúar 2012
3.
3. þrep 20. - 25. janúar 2012

Umsækjendur skulu undirbúa 3 verkefni sem samanlagt mega ekki taka meira en 6 mínútur í flutningi. Tvö þeirra skulu vera eintöl. Annað eintalið skal vera í bundnu máli (leiktexti, ekki ljóð). Hitt eintalið skal vera leiktexti í óbundnu máli. Þriðja verkefnið skal vera eintal, atriði eða gjörningur, sem umsækjandi telur að endurspegli hann og hans hugðarefni. Þessi þáttur má taka það form sem umsækjandi telur við hæfi. Við undirbúning er umsækjendum bent á að velta fyrir sér þeim þáttum sem dómnefnd hefur til viðmiðunar um mat á framlagi þeirra. Áhersla er lögð á að verkefnin séu ólík.

Prófið samanstendur af mörgum ólíkum þáttum t.a.m dans- og líkamsæfingum og er mælst er til að umsækjendur komi í hentugum fatnaði.

Að inntökuferli loknu er um 10 einstaklingum boðin skólavist.

Árið 2010, þegar síðast þegar var auglýst eftir umsóknum bárust 164 umsóknir um nám á leikarabraut og 11 nemendur voru teknir inn.

Berglind Ýr sigurvegari í Dans dans dans

800__mg_5658

Berglind Ýr Karlsdóttir annars árs nemandi við samtímadansbraut LHÍ stóð uppi sem sigurvegari í dansþættinum Dans dans dans laugardaginn 10. desember, en þættirnir hafa verið sýndir á RÚV í vetur.  Mikill fjöldi dansara tók þátt í prufum fyrir þættina en alls voru 30 atriði kynnt til leiks í byrjun vetrar.  Keppendur gátu valið sér fjölbreyttar tegundir af dansi til að sýna, s.s. samkvæmisdansa, ballett, stepp, nútímadans, streetdance og allt þar á milli.  Dómarar í þáttunum voru Katrín Hall, listrænn stjórnandi íslenska dansflokksins, Karen Björk Björgvinsdóttir, íslandsmeistari / heimsmeistari í samkvæmisdönsum og Gunnar Helgason leikari og leikstjóri.

Við óskum Berglindi Ýr innilega til hamingju með frábæran árangur.