Erasmus fyrir stúdenta

Umsóknarfrestur um Erasmus styrk fyrir stúdentaskipti eða starfsþjálfun á skólaárinu 2012-2013 hvort sem um ræðir haust- og/eða vorönn er 1. mars n.k.

Umsóknir sem berast eftir þann tíma fara á biðlista.

Rafrænt umsóknarform er neðst á þessari síðu.  Vinsamlegast lesið leiðbeiningar vel áður en smellt er á formið!

Stúdentaskipti/starfsnám

Erasmus gerir stúdentum kleift að stunda nám eða starfsnám í öðru þátttökulandi að lágmarki í 3 mánuði. Stúdentar eiga að geta flust á milli háskóla, án þess að það tefji þá í námi. Skilyrði er að háskólar skuldbindi sig til að meta nám stúdenta  erlendis sem hluta af námi þeirra. Þegar um starfsnám er að ræða er ekki víst að hægt sé að meta námið til eininga en þá skal tiltaka starfsþjálfun í skírteinisviðauka við útskrift.

Skilyrði

Til að fara í hefðbundin stúdentaskipti þarf stúdent að hafa lokið 60 ECTS einingum en það er ekki skilyrði vegna starfsnáms. Hjá LHÍ er miðað við að nemendur fari í skiptinám á 2. misseri 2.árs eða 1.misseri þriðja árs.  Í hönnunar- og arkitektúrdeild og í myndlistardeild skal skiptinámi á haustönn 3.árs vera lokið fyrir upphaf vorannar sem er útskriftarönn.  Myndlistardeild býður nemendum sínum jafnframt að fara í skiptinám á haustmisseri annars árs.  Nám á öllum stigum háskólanáms er styrkt, þar með talið doktorsnám. Lágmarksdvalartími fyrir Erasmus stúdentaskipti eða starfsþjálfun er 3 mánuðir.  Samstarfssamningur þarf að vera á milli háskóla vegna skiptináms (ekki vegna starfsnáms, nema hjá háskólastofnun). Styrkjunum er ætlað að koma á móts við ferða- og viðbótarkostnað sem hlýst af því að búa tímabundið erlendis. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að stúdentar haldi sínum venjulegu láns- eða styrkjamöguleikum óbreyttum.

Skólagjöld

Erasmus skiptinemar greiða ekki skólagjöld í þeim skóla þar sem þeir stunda nám sem skiptinemar, en greiða skóla- eða innritunargjöld við sinn heimaskóla.

Hvernig á að bera sig að

Í rafrænu umsókninni er beðið um ERASMUS “ID Code” fyrir gestaskólann (t.d “DK KOBENHA01). Gott er að vera búinn að finna þetta áður en byrjað er að fylla umsóknina út. Á síðunni http://www.moveonnet.eu er hægt að finna þessar upplýsingar, velja “Directory” og síðan “Countries” og síðan skóla.

Umsóknin er í fimm skrefum. Til að fara á milli skrefa verður að nota “next” og “previous” takkana á forminu. Það má EKKI nota “back” takkann í vefskoðaranum. Við það tapast umsóknin. EFTIR að búið er að senda inn umsóknina rafrænt (”submit”) er boðið upp á prentvæna útgáfu.

Að auki þarf nemandi að prenta út “learning agreement” og fá undirskrift á það frá deildarfulltrúa.

Þessum tveimur pappírum (útprentað eintak af Erasmus umsókn og “learning agreement”) skal stúdent skila inn til alþjóðafulltrúa LHÍ eigi síðar en 1.mars.

Umsókn fyrir skólaárið 2012-2013

Önnur skýrsluform / eyðublöð

Lokaskýrsla fyrir skiptinám á skólaárinu 2011/12

Lokaskýrsla fyrir starfsþjálfun/”placement” á skólaárinu 2011/12

Umsókn fyrir skólaárið 2011-2012

Learning Agreement

Learning Agreement (fyrir tónlistarnemendur)

AEC umsóknarform (fyrir tónlistarnemendur)

Nánar um Erasmus Life Long Learning Programme

Listi yfir skóla með Erasmus Charter (skjal nr.4)

Reynslusögur Erasmus stúdenta (frá Íslandi) ath. tekur nokkra stund að opnast og hægt er að flokka sögur á ýmsa vegu