Kuno Express
KUNO samstarfsnet myndlistarháskóla Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna bjóða uppá fjöldamörg námskeið á ári hverju er nefnast Kuno Express. Kuno greiðir ferða- og uppihaldsstyrk til þeirra nemenda sem hljóta sæti á slíku námskeiði. Styrkurinn samanstendur af 660 € í ferðastyrk og 70 € á viku í uppihaldsstyrk. Val Kuno nemenda á Kuno Express námskeið fer þannig fram að þeir nemendur sem eru fyrstir að skrá sig á námskeið býðst að taka þátt í því. Hér gildir því sú einfalda regla: “fyrstur kemur, fyrstur fær!”.
Einungis nemendur myndlistardeildar LHÍ geta sótt um sæti á Kuno Express námskeiði en þau eru auglýst á deildarfréttum myndlistardeildar og í fjölpósti til nemenda um leið og alþjóðafulltrúa berast upplýsingar um ný námskeið.
Á vefsíðu KUNO er hægt að lesa sig nánar til um KUNO Express en hér er stutt þýðing á því hvernig skráning á slíkt námskeið, styrkgreiðsla o.fl. fer fram:
1. nemandi óskar eftir þáttöku í Kuno Express námskeiði með því að skrifa tölvupóst til alþjóðafulltrúa þess skóla er heldur námskeiðið. Netfang kemur fram í auglýsingu um hvert og eitt námskeið.
2. alþjóðafulltrúi skólans er heldur námskeiðið mun síðan staðfesta í tölvupósti hvort nemanda LHÍ býðst sæti á námskeiðinu.
3. ef nemandi fær úthlutað sæti á Kuno námskeiði er fyrsta skrefið að ræða við umsjónarkennara og fá leyfi til að sækja námskeiðið. Tímalengd Kuno námskeiða er yfirleitt 1-3 vikur og því þurfa nemendur leyfi umsjónarkennara síns fyrir fjarveru úr öðrum námskeiðum heima fyrir.
4. þegar það er ljóst að nemandi mun sækja námskeiðið (hefur vilyrði frá skólanum sem heldur námskeiðið og leyfi frá umsjónarkennara) þá er haft samband við alþjóðafulltrúa LHÍ (heimaskóla). Fylla þarf út eyðublað til að fá greiddan Kuno Express styrk. Nemandi, umsjónarkennari og alþjóðafulltrúi skrifa undir eyðublaðið (þrjár undirskriftir) og alþjóðafulltrúi sér um að senda styrkumsókn til Kuno netsins. Þar sem um milligreiðslu á milli landa er að ræða tekur það styrkinn yfirleitt 5-10 daga að berast nemanda frá því að styrkumsókn er send út. Frá og með 2011 er þess krafist að nemandi fylli út styrkeyðublað rafrænt og prenti það svo út, þ.e. ekki er heimilit að handskrifa inná umsóknarform. Umsóknareyðublað um Kuno Express styrk
Athugið að þegar Kuno Express námskeið er auglýst þá er það auglýst til 15 skóla samtímis. Það borgar sig því að gera fljótt upp hug sinn og senda tölvupóst til alþjóðafulltrúa gestaskóla vilji maður láta á það reyna að fá sæti á auglýstu námskeiði.











