Leonardo mannaskipti

ecdg
Frá árinu 2007 hefur Listaháskólinn stýrt þremur Leonardo mannaskiptaverkefnum í flokknum “ungt fólk á vinnumarkaði”. Markmið þessara verkefna er að styrkja nýútskrifaða nemendur skólans til starfsþjálfunar á evrópskum vinnumarkaði en ljóst er að þýðing slíkra styrkja hefur margfaldast á tímum vaxandi atvinnuleysis.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB styrkir árlega aðeins hluta þeirra umsækjenda sem senda inn verkefnisumsóknir en aðeins fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki til landskrifstofu.  Það er skólanum sönn ánægja að hafa orðið fyrir valinu með verkefni sín og nú þegar hafa á annan tug útskrifaðra nemenda notið góðs af starfsþjálfun erlendis með aðstoð Leonardo mannaskiptastyrkja.

Leonardo mannaskiptastyrkur hljóðar uppá 1500 - 2000 evrur í styrk fyrir fyrstu tvær vikurnar og 150 - 220 evrur á viku eftir það. LHí býður útskrifuðum nemendum sínum uppá styrki til fjögurra til sextán vikna starfsþjálfunar. Upphæð styrkja ákvarðast m.a. af dvalarstað en styrkur fyrir 12 vikna dvöl í Bretlandi nemur t.a.m. 4200 evrum. Að auki er hægt að sækja um undirbúningsstyrk til tungumálanáms.

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum um framboð og fyrirkomulag styrkja er bent á að hafa samband við Ölmu Ragnarsdóttur verkefnisstjóra í síma 545-2205 eða í gegnum netfangið alma@lhi.is

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur (styrkþega)

Letter of Intent

Training agreement (Fyrstu síðuna má fylla út rafrænt með Acrobat Reader eða Preview)

Leonardo verkefni Listaháskólans:

2011-2012: “Moving Skills in Art and Design”

Verkefninu var úthlutaður styrkur að upphæð € 18.012.  Stefnt er að því að senda 4-6 styrkþega í fjögurra til tólf vikna starsfþjálfun.  Enn eru til styrkir fyrir starfsþjálfunartímabilið júní 2011 - maí 2012.

2010-2011: “Art and Design in Post-crisis Environment”

5 útskrifaðir nemendur á sviði arkitektúrs, hönnunar, myndlistar, tónlistar og leiklistar hlutu styrk til starfsþjálfunar í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og Noregi.

2009-2010: “New Skills and Training in Art and Design”

8 útskrifaðir nemendur á sviði hönnunar, myndlistar, listkennslu og sviðslista hlutu styrk til starfsþjálfunar í Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð og á Ítalíu og Bretlandi.

2007-2009: “Training in Design and Architecture”

6 útskrifaðir nemendur á sviði hönnunar og arkitektúr hlutu styrk til starfsþjálfunar í London, Kaupmannahöfn og París.