Express stúdentaskipti
Flest Nordplus netanna bjóða nú uppá express stúdentaskiptastyrki. Styrkurinn er hugsaður fyrir styttri ferðir nemenda sem tengjast samstarfsverkefnum skólanna eða sérstökum námskeiðum. Styrkurinn hljóðar uppá 660 evrur í ferðastyrk frá Íslandi og 70 evrur í staðaruppbót að auki fyrir hverja viku. Miðað er við að lengd dvalar sé 1-4 vikur.
Athygli skal vakin á því að KUNO, samstarfsnet myndlistarháskóla býður uppá sérstök Kuno Express námskeið. Tilkynningar um þessi námskeið eru bæði birtar í deildarfréttum og sendar til nemenda myndlistardeildar í tölvupósti. Sjá nánar um Kuno express námskeið á vefsíðu KUNO.
Umsóknareyðublað fyrir Kuno Express námskeið. Þetta eyðublað skal fylla út eftir að jákvætt svar um sæti á Kuno Express námskeiði hefur borist frá gestaskóla. Eyðublaðinu skal skila inn til alþjóðafulltrúa LHÍ eftir að umsjónarkennari hefur samþykkt umsóknina með undirskrift. Notið hástafi og skýra prentstafi - sérstaklega í reiti er varða bankaupplýsingar. Annað getur tafið fyrir afgreiðslu styrksins.
Þeir nemendur sem vilja kynna sér frekar möguleikana á Nordplus express styrkjum geta sent fyrirspurn til alþjóðafulltrúa LHÍ.











