Námsbrautastyrkir
Námsbrautastyrkir (joint study programmes/JSP) eru styrkir sem veittir eru til sameiginlegrar þróunar námsbrauta í skólum. Hæg er að sækja um styrk að hámarki til þriggja ára en jafnframt þarf að sækja um árlega.
Sameiginlegar námsbrautir (JSP) eru skilgreindar á eftirfarandi hátt:
-námsbraut skal samsvara fullu námi miðað við háskólalög
-námsbraut skal ljúka með prófi/prófgráðu skvt. reglum háskólalaga
-útskriftarskírteini með skírteinisviðauka (Diploma Supplement) skal gefa út í samræmi við háskólalög
-stúdentaskipti skulu vera hluti af skyldueiningum náms og minnst 30 einingar en skulu þó eigi vara lengur en sem nemur helmingi námstíma hvers nemanda
-námið skal vera samvinna skólanna þriggja og öll þróun þess unnin í samvinnu og með samþykki þáttakandi skóla
-samstarfið skal taka mið af undirrituðum samningi á milli þáttakandi skóla þar sem fram kemur markmið náms og hlutverk og skyldur hvers aðila fyrir sig.
-vinnuálag skal dreifast á alla þáttakandi aðila/skóla miðað við skiptingu námskeiðahalds
Hámark styrkveitingar er 50% af heildarkostnaði. Hægt er að lesa nánar um gerð umsóknar og fjármál í handbók um Nordplus á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu Háskólastigsins.











