Nemenda- og kennarastyrkir

Nemendastyrkir
Ferða- og dvalarstyrkir eru veittir til þeirra er áætla að stunda fullt nám við gestaskólann í minnst einn mánuð og að hámarki í 12 mánuði.  Athygli skal vakin á því að miðað er við að skiptinám frá LHÍ sé að hámarki ein önn.  Upphæð styrks er ákvörðun hvers samstarfsnets en skólaárið 2009-2010 eru veittar  að hámarki 660 evrur í ferðastyrk frá Íslandi og staðaruppbót til nemenda er að hámarki 180-200 evrur á mánuði.  Styrkurinn er veittur óháð þjóðerni en nemandi skal ástunda fullt nám til prófgráðu við heimaskóla og standast þær kröfur heima fyrir er varða skiptinám.  Nemendur sem stunda rannsóknir á framhaldsstigi náms eiga ekki rétt á Nordplus styrk, en er bent á Nordplus Horizontal áætlunina.

Reglur Nordplus varðandi nemendastyrki:

-meta skal skiptinámið til eininga sem hluta af staðarnámi til prófgráðu.

-nota skal ECTS einingakerfið við námsmat.

-nemandi skal hafa lokið minnst 60 einingum áður en skiptinám hefst.  Viðmið LHÍ eru 90 einingar.

-nemandi greiðir skólagjöld heima fyrir en ekki í gestaskóla

-nemandi skal dvelja á viðkomandi stað á meðan á skiptináminu stendur

-skrifa þarf undir styrkúthlutun/samning áður en greiðsla til nemanda á sér stað

-skrifa skal undir Learning Agreement áður en skiptinám hefst

-nemanda ber að skila lokaskýrslu eftir að skiptinámi lýkur

Kennarastyrkir
Kennarastyrkir eru veittir óháð þjóðerni en styrkþegi verður  að vera skráður kennari við Listaháskólann.  Dvölin hjá gestaskóla verður að tengjast kennslu á þann hátt að það mæti kröfum beggja aðila, þ.e. heima- og gestaskóla.  Ef skiptin fela ekki í sér eiginlega kennslu skulu þau tengjast kennslu á einhvern hátt, s.s. að styrkþegi sé leiðbeinandi, fylgist með kennslu eða vinni að þróun námsgagna eða kennsluaðferða.

Almennt viðmið um kennarastyrki skólaárið 2009-2010 er 660 evrur í ferðastyrk og 70 evrur á dag í dagpeninga eða 355 evrur á viku.

Styrkþega ber að skrifa undir samning áður en greiðsla fer fram og að skila inn lokaskýrslu sé þess óskað.