Þróunar- og nýsköpunarstyrkir

Nordplus veitir styrki til þróunar- og nýsköpunarverkefna.  Hæg er að sækja um styrk að hámarki til þriggja ára en jafnframt þarf að sækja um árlega.

Auk styrkja til þróunar námsefnis geta verkefni varðað eftirfarandi þætti:

-gæðamat (Quality Assurance)

-mat og úrvinnslu gagna/niðurstöður samvinnu samstarfsneta og verkefna

-þróun samvinnuþáttar með öðrum stofnunum/fyrirtækjum en þeim sem heyra undir háskóla eða ríkisstofnanir

-þróun samstarfs við atvinnurekendur

-þróun nýrra kennsluaðferða

Hámark styrkveitingar er 50% af heildarkostnaði. Hægt er að lesa nánar um gerð umsókna og fjármál í handbók um Nordplus á heimasíðu Alþjóðaskrifstofu Háskólastigsins.