Verkefnastyrkir (IPs)

Nordplus veitir styrki til samstarfsverkefna háskóla (intensive projects/IP).  Dæmi um slíkt verkefni er sameiginlegt námskeið sem stendur yfir í minnst 5 virka daga og að hámarki í einn mánuð.  Þáttakendur skulu vera frá minnst þremur skólum og þremur löndum.  Námskeiðið má starfrækja inná skólaárinu jafnt sem að sumri.  Námskeiðið verður að vera einingarbært og metið til eininga sem hluti af staðarnámi nemenda.  Sama námskeið getur hlotið styrk að hámarki þrisvar sinnum verði áframhald á því en sækja þarf um styrkinn í hvert skipti fyrir sig.

Rannsóknarnemendur geta verið leiðbeinendur á IP námskeiði en geta ekki hlotið styrk sem þáttakendur.

Umsóknarfrestur er 1.mars árlega eða á sama tíma og samstarfssnet skila inn sínum umsóknum vegna styrkja á skólaárinu þar á eftir.  Athugið að sé sótt um IP styrk í gegnum eitt af samstarfsnetum LHÍ þá er þessi umsóknarfrestur mismunandi eftir netum.

Verkefni eru styrkt að hámarki 50% af heildarkostnaði. Til kostnaðar reiknast ferðir kennara og þáttakenda, uppihald, leiga kennslurýmis, laun, efniskostnaður o.fl.  Umsókn skal fylgja listi yfir samstarfssaðila (skóla), nákvæm lýsing á námskeiði (efni, markmið og námsmat) og fjárhagsáætlun.

Nánari upplýsingar um Nordplus verkefnastyrki veitir alþjóðafulltrúi LHÍ.