Um alþjóðlegt samstarf
Listaháskólinn tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Skólinn er aðili að tveimur viðamiklum samskiptaáætlunum, Nordplus menntaáætlun Norðurlandaráðs og Erasmus LLP menntaáætlun Evrópusambandsins. Báðar þessar áætlanir byggjast á kennara- og nemendaskiptum auk annarra samvinnuverkefna. Listaháskólinn hefur gert tvíhliða samning við u.þ.b. 70 háskóla í Evrópu á vegum Erasmus LLP menntaáætlunarinnar.
Nemendur, kennarar og annað starfsfólk geta sótt um styrki gegnum menntaáætlanirnar. Alþjóðafulltrúi LHÍ leggur áherslu á að aðstoða nemendur við að sækja um sem skiptinemar í erlendum samstarfsskólum í eina önn. Í upphafi hverrar annar eru haldnir kynningarfundir í hverri deild um þá möguleika sem stendur nemendum til boða, umsóknarferli o.fl. Einnig aðstoðar alþjóðafulltrúi starfsfólk og kennara sem sækja um styrki til starfs- og kennaraskipta.
Alþjóðafulltrúi er: Alma Ragnarsdóttir, s. 545 2205
Alþjóðafulltrúi hefur yfirumsjón með alþjóðasamskiptum Listaháskólans, nemenda- og kennaraskiptum.
Viðtalstími er frá kl.10.00-14.00 alla virka daga.
Auk þess hefur alþjóðafulltrúi fasta viðveru í tónlistardeild fyrsta þriðjudag hvers mánaðar frá kl.10.00 - 14.00 og í myndlistardeild fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá 10.00-14.00.







