Please note: Information about the Application & Admission Process is only provided in Icelandic.
Í söng- og hljóðfærakennslu eru þrjár námsleiðir:
- Tveggja ára, 120 eininga meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu.
- Eins árs, 60 eininga diplómanám til kennsluréttinda sem einungis er í boði fyrir þá sem lokið hafa meistaragráðu í sinni listgrein.
- Þriggja ára, 180 eininga meistaranám með aðfararnámi fyrir þá sem hafa lokið a.m.k. 120 einingum á bakkalárstigi í listgrein.
Umsóknarferli
Umsókn um nám í Listaháskóla Íslands er á stöðluðu rafrænu formi.
Umsóknarferlið er í tveimur skrefum, fyrst er sótt um og síðan er umsóknargjald borgað. Hægt er að vista umsókn á meðan verið er að vinna í henni.
Umsóknin
Til að umsókn sé fullgild þarf að greiða umsóknargjald og eftirfarandi gögn þurfa að berast Listaháskólanum:
1. Staðfest afrit af prófskírteinum (ljósrit gildir ekki)
2. Umsagnir tveggja meðmælenda
Umsækjendur verða að skila tveimur umsögnum frá meðmælendum, æskilegt að önnur umsögn sé tengd námi og hin vinnu. Hver umsögn ætti ekki að vera lengri en ein síða og hægt er að skila henni á íslensku eða ensku. Umsækjendur skrifa nöfn og netföng tveggja umsagnaraðila í þar til gerðan reit í umsókninni.
Þegar umsækjendur ýta á sækja um, þá fá umsagnaraðilarnir póst frá LHÍ þar sem þeir eru beðnir um að senda umsögn um viðkomandi umsækjanda. Þegar umsagnaraðilarnir hafa sent umsögnina þá fá umsækjendur póst um búið sé að hlaða umsögninni upp í umsóknina.
3. Greinargerð: Ástæður umsóknar
Í þessari greinagerð eru umsækjendur vinsamlegast beðnir um að gera grein fyrir því hvaða þýðingu þeir telja að námið hafi fyrir sig og hvað þeir telja eftirsóknarvert við nám í menntunarfræðum listgreina. Vinsamlegast tiltakið einnig hvaða kosti umsækjandi hefur til að bera sem hann telur líklegt að muni koma sér vel í kennslu og miðlun. Hámarks lengd er 300 orð.
Í þessari greinagerð eru umsækjendur vinsamlegast beðnir um að gera grein fyrir því hvaða þýðingu þeir telja að námið hafi fyrir sig og hvað þeir telja eftirsóknarvert við nám í menntunarfræðum listgreina. Vinsamlegast tiltakið einnig hvaða kosti umsækjandi hefur til að bera sem hann telur líklegt að muni koma sér vel í kennslu og miðlun. Hámarks lengd er 300 orð.
4. Ferilskrá (CV)
Ferilskrá með almennum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja umsókn. Ferilskrá skal innihalda yfirlit yfir menntun, störf, tungumálagetu og aðra reynslu sem umsækjandi telur að nýtist í náminu. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en tvær síður.
Ferilskrá með almennum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja umsókn. Ferilskrá skal innihalda yfirlit yfir menntun, störf, tungumálagetu og aðra reynslu sem umsækjandi telur að nýtist í náminu. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en tvær síður.
Inntökuferli
Auk viðtals getur nemandi þurft að sýna fram á hæfni sína t.d. með ferilmöppu, dæmum af fyrri verkum, lifandi túlkun eða flutningi eftir því sem við á.
Inntökuskilyrði
120 eininga meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu
Umsækjendur skulu hafa lokið bakkalárprófi eða sambærilegu námi í tónlist við viðurkennda tónlistarskóla.
60 eininga diplómanám
Umsækjendur sem lokið hafa meistaragráðu í listum á háskólastigi, sem jafngildir 120 einingum, geta sótt um 60 eininga diplómanám.
180 eininga meistaranám með aðfararnámi
Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára diplómanámi á háskólastigi í listum við viðurkennda háskóla.
Almenn skilyrði
Við mat á námi frá erlendum háskólum er stuðst við opinber gögn og upplýsingar frá viðkomandi landi. Einnig liggja til grundvallar alþjóðasamningar sem Ísland á aðild að ásamt Lissabon samningnum og samningi milli Norðurlandanna um gangkvæma viðurkenningu á námi.
Leiki einhver vafi á að umsækjandi hafi fullgild próf samkvæmt þessum samningum er hægt að leita til NARIC /ENIC skrifstofu sem staðsett er í Háskóla Íslands og óska eftir mati samkvæmt fyrrnefndum samningum.
Tungumálakunnátta
Meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu er nám sem kennt er á íslensku nema um erlenda gestakennara sé að ræða, þá fer kennsla fram á ensku. Umsækjendur þurfa að vera vel færir um að tjá sig munnlega og skriflega á íslensku í samræmi við kröfur í háskólanámi.