What do you want to find?
Sigrún Birgisdóttir – Umdeild rými #1 - almenningsrými
23.04.2018 - 12:15
Sigrún Birgisdóttir, deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar, heldur erindið Umdeild Rými #1 - almenningsrými undir fyrirlestraröð Vettvangs.
Vettvangur: Þverfaglegur vettvangur og óræð framtíð er opin fyrirlestraröð í tengslum við samnefnt námskeið þar sem nemendur á öðru ári af öllum brautum hönnunar- og arkitektúrdeildar starfa að þverfaglegum samstarfsverkefnum í Þverholti 11 og á Útskriftarhátíð á Kjarvalsstöðum.
Verkefni nemenda felast í skapandi umbreytingu á menningu og rýmum í eigin nærumhverfi með félagslega, menningarlega og efnislega sjálfbærni að leiðarljósi.
Allir fyrirlestar eru frá kl. 12:15 - 13:00 og verða haldnir í sýningarrými 105, gengið upp á pall inni í mötuneyti skólans.