Halldóra Geirharðsdóttir hefur verið ráðin prófessor í leiktúlkun við sviðslistadeild Listaháskólans. Alls sóttu níu um stöðuna og hlutu sex þeirra hæfi. 

Halldóra lauk leikaranámi frá Leiklistarskóla Íslands. Hún á að baki langan og samfelldan feril á fagvettvangi sviðslista og er leiðandi listamaður með trausta þekkingu á sínu sérsviði. Hún hefur fest sig í sessi sem viðurkenndur listamaður í fremstu röð og býr yfir þekkingu á straumum og stefnum í samtímasviðlistum.

Halldóra hefur verið fastráðin leikkona hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu frá 1996 þar sem hún hefur leikið í fjölda leiksýninga, oft í burðarhlutverkum. Hún hefur verið meðhöfundur að fjölda leiksýninga þar á meðal Jesús Litla sem var valin sýning ársins á Grímunni 2010. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímuverðlaunanna og hlaut Grímuna fyrir leik sinn í Billy Elliot 2015 og Edduverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki í kvikmyndinni Málmhaus 2014. Auk þessa hefur Halldóra nokkra reynslu í leikstjórn.