Deildarforseti myndlistardeildar Sigrún Inga Hrólfsdóttir er hluti af elsta og reyndasta gjörningahóp landsins, Gjörningaklúbbnum, ásamt Eirúnu Sigurðardóttur og Jóní Jónsdóttur. Hópurinn vinnur nú tillögu sína áfram fyrir lokaval á framlagi Íslands til Feneyjatvíæringsins 2017. Sýningarstjórarnir Nadim Samman og Anja Henckel vinna að tillögunni með þeim en alls bárust fagráði Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM) 29 tillögur frá listamönnum og sýningarstjórum. Valdar voru þrjár tillögur til þess að vinna áfram að nánari útfærslu verkefnanna. Aðrir listamenn sem valdir voru til að vinna sínar tillögur áfram eru:
Egill Sæbjörnsson með sýningarstjóranum Stephanie Böttcher.
Margrét Blöndal með sýningarstjóranum Alfredo Cramerotti.
Gjörningaklúbburinn er ákaflega glaður að vera kominn í undanúrslit í keppninni um tvíæringinn. Þetta er virkilega sterkur riðill og við munum gera okkar besta í næstu umferð.
Gjörningaklúbburinn