Námið
Listaháskóli Íslands býður fjölbreytt nám á fræðasviði lista. Flestar námsleiðirnar eru á fyrsta námsstigi sem leiða til B.A. eða B.Mus. gráðu. Það er þriggja ára nám og nemendur ljúka að lágmarki 180 einingum. Í leikaranámi er uppbygging náms með öðrum hætti en það er fjögurra ára nám og nemendur ljúka að lágmarki 240 einingum til B.F.A. prófs í leiklistardeild.
Jafnframt er boðið er sérstakt diplómanám ætlað nemendum sem enn stunda almennt nám á framhaldsskólastigi, en standast kröfur Listaháskólans um kunnáttu og færni í tónlist. Í listkennsludeild er einnig boðið diplómanám til kennsluréttinda.
Í listkennsludeild og í tónlistardeild er boðið meistaranám. Í listkennsludeild ljúka nemendur M.A. gráðu í listkennslu, en við tónlistardeild er um meistaranám í tónsmíðum sem lýkur með M.A. gráðu að ræða.
Við skipulag náms við Listaháskólann er miðað við að 2 einingar jafngildi að lágmarki 40 stundum í vinnu fyrir nemandann. Fullt nám er 60 einingar, 30 á hvorri önn.








