Kennslumat

Við lok hvers námskeiðs eru nemendur beðnir um að fylla út svokallað kennslumat. Kennslumatseyðublaðið birtist á innri vef skólans og nemandi nálgast það með að slá inn viðeigandi lykilorð. Matið er unnið á grundvelli nafnleyndar en með því fást upplýsingar um skoðun nemenda á námskeiði og kennslu. Þannig er það vettvangur þeirra til að koma á framfæri ábendingum um það sem vel er gert og það sem bæta má.  Kennslumat er hluti af innra eftirliti skólans og forstöðumaður háskólaskrifstofu skilar niðurstöðum til rektors og deildarforseta. Þegar þeir hafa yfirfarið þær er opnað á aðgang kennara að þeirra mati í MySchool kerfinu. Ítrasta trúnaðar er jafnan gætt við meðferð kennslumatsgagna.