Námsmat

Megintilgangur námsmats er að veita nemendum upplýsingar um gengi og árangur í námi. Einnig felst í því staðfesting skólans um að nemandi hafi tileinkað sér þekkingu og færni á tilteknu sviði.

Próf og mat á verkefnum fer fram á námskeiðstíma eða á sérstökum prófdögum í lok hverrar annar. Kennarar standa fyrir námsmati og eru ábyrgir fyrir því, en hver deild ræður tilhögun prófa og verkefnaskila innan marka þessara reglna.

Próf eru munnleg, skrifleg eða verkleg. Til verkefna teljast m.a. ritgerðir, skýrslur, tónleikar, hvers konar listsköpunarverkefni og rannsóknir tengdar þeim. Um samsetningu námsmats skal vera samráð á milli deildarforseta og hlutaðeigandi kennara og ákvörðun kunngerð nemendum í námskeiðslýsingu eigi síðar en við upphaf kennslu í viðkomandi námskeiði.

Einkunnir eru í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Lágmarkseinkunn til að standast próf er einkunnin 5. Rektor gefur út samanburðarkvarða til viðmiðunar fyrir kennara. Í námskeiðum, sem gefa 6 einingar eða minna er deildarforseta heimilt að gefa leyfi fyrir að námsmat sé gefið til kynna með bókstöfum í stað tölustafa : “S “ fyrir “staðist,” og “F” fyrir “fall.”