Skólagjöld
Skólagjöld hækka um tæp 2% milli ára, í samræmi við hækkun neysluvísitölu s.l. 12 mánuði (febrúar 2010-febrúar 2011), og verða kr. 350.000 fyrir skólaárið 2011-2012.
Eingreiðsla fyrir nemendur í leyfi er kr. 45.000.
Skólagjöld eru háð breytingum milli ára.
Skólagjöld greiðast í tvennu lagi með gjalddögum í september og febrúar. Nemendur fá heimsenda greiðsluseðla sem þeir borga í banka. Hafi nemendur ekki greitt skólagjöld 20 dögum eftir gjalddaga er lokað fyrir aðgengi þeirra að húsnæði skólans og skólanúmer þeirra gert óvirkt.
Nemendur skulu ávallt gera ráð fyrir efnis- og bókakaupum. Jafnframt skal reikna með prentkostnaði.
Nemendum er bent á að upphæð skólagjalda getur hækkað á milli ára.
Nám í Listaháskóla Íslands er lánshæft. Tengiliður við Lánasjóð Íslands er forstöðumaður háskólaskrifstofu.











