Útskrift

Formleg brautskráning fer fram einu sinni á ári um mánaðamót maí/júní. Nemendur sem hyggjast útskrifast þurfa að sækja um brautskráningu til háskólaskrifstofu fyrir 15. mars. Mikilvægt er að nemendur athugi hvort þeir fullnægi öllum skilyrðum til útskriftar áður en þeir skrá sig.

Nemendur sem vantar 6 einingar eða færri til að útskrifast geta sótt um brautskráningu að hausti (15. september) eða á miðjum vetri (15. janúar) með sérstakri umsókn til rektors. Umsókn þarf að berast rektor eigi síðar en 10. júní fyrir haustútskrift og 15. nóvember fyrir miðsvetrarútskrift.

Við útskrift fá allir nemendur prófskírteini, tvö eintök af námsferli á íslensku og ensku ásamt skírteinisviðauka (Diploma Supplement) sem er lýsing á því námi sem viðkomandi hefur lokið. Skírteinisviðaukinn er útgefinn á ensku.  Það er mikilvægt fyrir nemendur að láta hann fylgja með þegar sótt er um nám erlendis þar sem hann inniheldur staðlaðar lýsingar á náminu og stutta lýsingu á íslensku menntakerfi og uppbyggingu þess.  Skírteinisviðaukinn fylgir prófskírteinum nemenda þeim að kostnaðarlausu.

Hér má sjá sýnishorn af skírteinisviðauka (Diploma Supplement)