Höfuðáhersla tónlistardeildar er að innsæi og forvitni séu drifkraftur sköpunar. Deildin hefur sérstöðu í framsæknu námi sem byggir á arfleifð, sögu, þekkingu og tækni.
Markmið deildarinnar er að stuðla að þroska og efla nemendur til sjálfstæðis með sterka vitund fyrir nýsköpun, samfélagi og samstarfi.
Hlutverk tónlistardeildar er að mennta tónlistarmenn og undirbúa þá fyrir störf í tónlist á breiðum grundvelli. Markmiðið er að þeir tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, auki við þekkingu sína og færni og rækti sjálfa sig sem sjálfstæða listamenn. Námið skal standast alþjóðlegar kröfur og taka mið af fjölbreyttum verkefnum tónlistarmanna í tónlistarflutningi, nýsköpun og við kennslu. Útskrifaðir nemendur tónlistardeildar eiga að vera afl sem auðgar samfélagið.
Námsleiðir deildarinnar.
Klassískt flytjendanám B.MusB.Mus
Í klassísku flytjendanámi fá nemendur tækifæri til að þjálfa þá hæfni sem þarf til að starfa sem atvinnuflytjendur sem og þeim fjölbreyttu þáttum sem snúa að…
Tónlist Nýsköpun Tækni B.MusB.Mus
Námsleiðin Tónlist, nýsköpun, tækni er kraftmikið, nútímalegt og framsækið námsumhverfi sem hannað er með það að markmiði að mæta fjölbreyttum þörfum nútímatónlistarfólks.
Music Composition MA/M.MusMA/M.Mus
The international MA programme in composition enables the student to develop his/her artistic and theoretic activity in a stimulating creative and critical environment, with access to…
New Audiences and Innovative Practice – NAIP M.MusM.Mus
The program is suitable for musicians with diverse backgrounds. NAIP is a forum where students are encouraged to use innovative and interdisciplinary approaches to creating and…
Tónsmíðar BABA
Tónsmíðanám í LHÍ er fjölbreytt námsleið sem miðar að því að mennta nemendur í því helsta sem lýtur að tónsmíðaaðferðum– og tækni samtímans. Öflugt, nútímalegt og…
Sæktu um nám við deildina.
Kynntu þér námsleiðir deildarinnar og umsóknarferlið. Alþjóðlegar umsóknir og skiptinám fara í gegnum alþjóðaskrifstofu LHÍ.