Nemendur á fyrsta ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands hafa verið að skoða og greina mismunandi not borgarbúa á Öskjuhlíðinni. Afrakstur þeirrar vinnu birtist nú í innsetningum sem nemendur hafa sjálfir smíðað og nota til að magna upp stemningu eða getu á þeim stöðum sem þau eru að vinna með. Nemendur mega eingöngu vinna með endurnýtanleg efni, eiga að geta aflað þeirra án mikilla útgjalda og eiga að geta fargað án þess að skilja eftir sig spor í umhverfinu.

Leiðbeinendur í námskeiðinu eru Björn Guðbrandsson og Hildigunnur Sverrisdóttir.

Verkin standa einungis í Öskjuhlíðinni í örfáa daga eða út þriðjudaginn 19. maí.

Hér má sjá staðsetningar verkanna í hlíðinni: