Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á hverju skólaári, og til úthlutunar nú er 1 milljón króna. Auglýst var í fyrsta sinn eftir umsóknum á haustönn 2013, og var þremur styrkjum úthlutað til eftirfarandi verkefna í febrúar 2014: 

Arkitektúr hugmyndanna, kr. 450.000 (Sigrún Alba Sigurðardóttir, lektor í menningarfræði).
Reykjavíkurgötur, kr. 650.000 (Sigrún Birgisdóttir, deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar).Tungumálið í heilu lagi, kr. 250.000 (Dóra Ísleifsdóttir, prófessor í grafískri hönnun).

Á  sjóðsins má finna nánari upplýsingar um reglur sjóðsins, umsóknareyðublað og skipan í stjórn.

Umsóknir skulu berast útprentaðar á eyðublöðum sjóðsins í þríriti fyrir klukkan 15.00 á skrifstofu skólans, Þverholti 11, 105 Reykjavík.

Ritari sjóðsins er Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu, og svarar hún fyrirspurnum umsækjenda og veitir aðstoð við umsóknagerð (olofg [at] lhi.is%22%20%5Ct%20%22_blank">olofg [at] lhi.is, s. 545 2211)