Fræðafólk, listamenn, hönnuðir og aðrir sem starfa á sviði lista og menningar eru hvattir til að notfæra sér fjölbreyttar aðferðir og miðla til að finna framlagi sínu viðeigandi umgjörð, s.s. sýningar, vinnusmiðjur, flutning í rauntíma, lengri málstofur, styttri málstofur (Pecha Kucha), kynningar á verkum í vinnslu, hringaborðsumræður, samtalsform, gjörningar eða annað.
Í ár vill ráðstefnunefndin kalla sérstaklega eftir tillögum tengdum hugtakinu hliðrun, þótt dagskrá ráðstefnunnar muni ekki takmarkast við það viðfangsefni. Skilyrði er nú sem fyrr að tillögur tengist rannsóknum á sviði lista á einn eða annan hátt.
Tillögur skulu innihalda nafn, starfstitil og netföng þátttakenda, ásamt lýsingu sem ekki er lengri en 300 orð, og sendast á netfangið olofg [at] lhi.is
Frestur til að senda inn tillögur er 12. desember. Innsendum tillögum verður svarað 12. janúar 2015.
Ekkert skráningargjald er á ráðstefnuna og ekkert fjármagn er til framleiðslu eða uppsetningar verka.
Ráðstefnunefnd: Bryndís Björgvinsdóttir, aðjúnkt og fagstjóri hönnunar- og arktiektúrdeildHulda Stefánsdóttir, prófessor og fagstjóri myndlistardeildÓlöf Gerður Sigfúsdóttir, forstöðumaður rannsóknaþjónustu