Indriðaverðlaunin eru veitt annað hvert ár þeim fatahönnuði sem þykir hafa skarað fram úr. Verðlaunin eru kennd við klæðskerann Indriða Guðmundsson, heitinn, sem var þekktur fyrst og fremst þekktur fyrir gæði og fagmennsku. Með verðlaununum vill Fatahönnunarfélag Íslands veita hönnuðum viðurkenningu fyrir starf sitt og framlag til íslenskrar fatahönnunar og beina ljósi að því besta sem er að gerast í íslenskri fatahönnun hverju sinni.

Við val á hönnuði er litið til gæða hönnunarinnar allt frá hugmyndafræði til frágangs. Þegar kemur að góðri fatahönnun þarf ákveðið jafnvægi að ríkja milli sköpunargleðinnar og hins verklega. Hönnunarvinnan sem fer í hverja fatalínu er mikil og ferlið margslungið. Fjölmörg atriði koma við sögu í hönnunarferlinu, bæði stór og smá, en öll eru þau mikilvæg til að skapa vel heppnaða heildarmynd.

Dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að veita ætti Katrínu Maríu Káradóttur verðlaunin árið 2013 fyrir störf sín í faginu bæði hérlendi og erlendis, bæði fyrir hönnun og kennslu við fatahönnunardeild LHÍ.

Katrín María, sem er menntaður  klæðskeri og fatahönnuður hefur í  starfi sínu lagt mikla áherslu á vandaða sníðagerð, gæði, efni og frágang. Katrín María hefur skilið eftir fingrafar klæðskerans á allri sinni vinnu sem einkennist af metnaði og fagmennsku.

Hún hefur starfað sem hönnuður fyrir erlend fyrirtæki s.s John Galliano,  Lutz, Thomas Engelhart, Bali Barette og Martine Sitbon.  Einnig hefur hún starfað fyrir íslensku fyrirtækin Andrea Mack og Ella en hún hefur verið yfirhönnuður Ella frá upphafi. Hún hefur starfað sem kennari við Listaháskóla Íslands í allmörg ár og er núna fagstjóri fatahönnunarbrautar.

Í dómnefnd sátu; Halla Helgdóttir , Eyjólfur Pálsson , Erna Bergman , Steinunn Sigurðardóttir og Linda Björg Árnadóttir.

Á ljósmyndinni eru Katrín María Káradóttir og Steinunn Sigurðardóttir sem hlaut Indriðaverðlaunin 2011