Nemendum deildanna býðst að sækja listamannaspjall með Weiner í fyrirlestrarsal myndlistardeildar. 

Lawrence Weiner er heimsþekktur listamaður sem fyrst gat sér orð á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Verk hans hafa haft mótandi áhrif í heimi myndlistar jafnt sem hönnunar á síðustu áratugum og er mikill fengur að heimsókn hans fyrir nemendur á breiðu sviði lista- og hönnunar.