Berkowitz á að baki 25 ára feril í tískuiðnaðinum og er hann maðurinn á bak við nokkrar þekktustu flíkur samtímans. Má þar nefna hlaupastuttbuxur sem hann hannaði fyrir Nike sem og nærföt fyrir Calvin Klein sem komu fram á sjónarsviðið á tíunda áratug síðustu aldar í einni eftirtektarverðustu auglýsingaherferð síðustu ára.

Miðvikudaginn 10. desember mun Berkowitz flytja fyrirlestur í fyrirlestraröð Hönnunar- og arkitektúrdeildar, GESTAGANGI, um skapandi ferli fatahönnuðarins.

Vefsíða Berkowitz: