Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Birgitta Steingrímsdóttir og Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, nemar frá Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands, hlutu verðlaunin fyrir verkefnið Þekkirðu fuglinn? Rannsókn á fuglafræðiþekkingu barna og þróun og gerð spils sem gerir þeim kleift að læra í gegnum leik. Leiðbeinendur þeirra voru: Gunnar Þór Hallgrímsson, dósent í dýrafræði við Háskóla Íslands, Kristrún Thors, sjálfstætt starfandi vöruhönnuður og stundakennari við Listaháskóla Íslands, og Valgerður Þórisdóttir, grunnskólakennari í Selásskóla. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Birgittu og Heiðdísi Ingu verðlaunin.

Þekkirðu fuglinn? er þriggja mánaða rannsóknarverkefni sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2015. Viðfangsefni verkefnisins eru af tvennum toga; rannsókn á núverandi þekkingu barna á íslenskum fuglum og í framhaldi af því hönnun og gerð spils um fuglana sem kennarar geta nýtt sem námsgagn í náttúrufræði.

Í upphafi sumars var lögð könnun fyrir tæplega 400 nemendur í 4. bekk á höfuðborgarsvæðinu þar sem athugað var hvort þeir þekktu algengustu og mest einkennandi fugla í náttúru Íslands. Einnig voru kennsluhættir í fuglafræði skoðaðir. Í framhaldi af því tók við hönnun og gerð spilsins Fuglafár sem hefur það að markmiði að hjálpa börnum að þekkja útlit fuglanna og nöfn þeirra. Auk þess fá börnin ýmsar upplýsingar um þá, svo sem þyngd og lengd, fjölda eggja í hreiðri og hvaða ættbálkum þeir tilheyra ásamt skemmtilegum texta um hvern fugl. Markmið verkefnisins er að stuðla að bættri þekkingu grunnskólabarna á íslenskum fuglum með því að koma fram með nýstárlegar kennsluaðferðir sem auka fræðslu í gegnum leik. Samhliða því að kveikja áhuga barna á fuglunum er vonin sú að Fuglafár stuðli að enn frekari áhuga þeirra á náttúru Íslands og auki skilning á mikilvægi hennar.

Spilið hefur verið í prófun í grunnskólum í vetur og fengið góðar undirtektir. Næstu skref eru að hefja framleiðslu og munu umsagnir kennara og nemenda nýtast til betrumbóta svo að spilið verði að enn betra kennslutæki.

 

Þrjú önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:

• Innigarður: Heimaræktunarkerfi fyrir kryddjurtir byggt á vatnsgeli unnu úrbrúnþörungum. Verkefnið var unnið af Brynju Þóru Guðnadóttur, nemanda viðListaháskóla Íslands, og Grétari Guðmundssyni, nemanda við Háskóla Íslands, ísamstarfi við Matís ohf. Leiðbeinendur voru Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Svinnu, Valgerður T. Gunnarsdóttir, Listaháskóla Íslands, og Gissur Örlygsson, Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

• Íðorðasafn og myndun nýrra íðorða í lífvísindum. Verkefnið var unnið af Einari Lövdahl Gunnlaugssyni, nemanda við Háskóla Íslands, í samstarfi við Líffræðifélag Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Lífvísindasetur Háskóla Íslands. Leiðbeinendur voru Ágústa Þorbergsdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Erna Magnúsdóttir, Háskóla Íslands.

• Náttúrutúlkun á grænum svæðum í Reykjavík: Stöðumat og nýjar lausnir fyrir ferðamenn og íbúa. Verkefnið var unnið af Shauna Laurel Jones og Guðbjörgu Runólfsdóttur, nemendum við Háskóla Íslands, í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Leiðbeinendur voru Snorri Sigurðsson, Reykjavíkurborg, og Katrín Anna Lund, Háskóla Íslands.

 

Verðlaunin í ár

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta og fyrsta sinn. Verðlaunin í ár eru púðar úr vörulínunni Notknot eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur vöruhönnuð sem framleiðir undir nafninu Umemi. Allir sem voru tilnefndir og hlutu þá viðurkenningu að verkefnið þeirra var valið sem öndvegisverkefni sjóðsins fengu viðurkenningarskjal undirritað af forsetanum.

 

Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins styrktu Nýsköpunarsjóð námsmanna við veitingu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár.