Opni Listaháskólinn
Starfsemi Opna Listaháskólans er tvíþætt
Boðið er upp á hádegisfyrirlestra um fjölbreytt efni í samvinnu við myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild. Fyrirlestrarnir eru að jafnaði kl.12.30 á mánudögum í húsnæði myndlistardeildar í Laugarnesi og á þriðjudögum kl. 12.00 í húsnæði hönnunar-og arkitektúrdeildar í Skipholti 1.
Auk þess er endurmenntun fyrir listgreinakennara undir hatti Opna Listaháskólans. Skólaárið 2009-2010 býður Listaháskólinn starfandi listgreinakennurum að sækja endurmenntun í listfræði og kennslufræðum með nemendum í kennaranámi og í listnámsdeildum. Markmiðið með náminu er að efla hlut lifandi lista í fræðslu og menntun allra landsmanna og auka um leið skilning á gildi skapandi hugsunar í hvers konar skólastarfi. Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.A.-nám í listgrein og kennslufræði til kennsluréttinda eða B.Ed. námi í tónmenntar- eða myndmenntarkennslu.
Opni Listaháskólinn
Skipholti 1
105 Reykjavík
Sími: +354 552 4000
Fax: +354 562 3629
Netfang: opni.listahaskolinn@lhi.is












