Endurmenntun
Skólaárið 2008-2009 býður Listaháskólinn starfandi listgreinakennurum að sækja endurmenntun í listfræði og kennslufræðum með nemendum í kennaranámi og í listnámsdeildum.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi í kennslufræði og listnámi í myndlist, hönnun, leiklist eða tónlist. Nemendur geta sótt allt að 48 eininga nám.
Markmið
Það er markmið Listaháskólans að efla hlut lifandi lista í fræðslu og menntun allra landsmanna og auka um leið skilning á gildi skapandi hugsunar í hvers konar skólastarfi. Námsleiðin er endurmenntun fyrir kennara í listum í grunn- og framhaldsskólum. Með náminu vill Listaháskólinn stuðla að þróun náms í listum og listfræðum.
Skipulag náms
Kennsla á haustönn hefst 25. ágúst og kennsla á vorönn lýkur í maí. Kennslufræðinámskeið eru kennd í LHÍ í Laugarnesi og listfræðinámskeið í Laugarnesi, Skipholti eða Sölvhólsgötu. Kennsla er öll staðbundin og fer fram frá kl. 8:30 og fram til kl. 17:00 á daginn. Listfræðinámskeiðin eru á B.A.-stigi en kennslufræðin á M.A.-stigi.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa lokið B.A.-nám í listgrein og kennslufræði til kennsluréttinda eða B.Ed. námi í tónmenntar- eða myndmenntarkennslu







