Rannsóknaþjónusta
Skipholti 1, 105 Reykjavík
Sími 545 2211, fax: 562-3629
www.lhi.is/rannsoknir
Forstöðumaður: Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, farsími 699-7066
Viðvera forstöðumanns í Sölvhóli er alla mánudaga kl. 9-12.
Viðvera forstöðumanns í Laugarnesi er alla fimmtudaga kl. 9-12.
Hlutverk rannsóknaþjónustunnar er að auk veg rannsókna vil skólann og þar með stuðla að nýsköpun þekkingar á fræðasviðinu listir. Það er gert m.a. með því að skapa akademísku starfsliði skólans farveg og svigrúm fyrir rannsóknir sínar, skapa vettvang fyrir gagnrýnar samræður um rannsóknir og listsköpun, auk þess að þjálfa nemendur í vinnubrögðum og miðlun rannsókna.
Forstöðumaður hefur yfirsýn yfir styrkjamöguleika í rannsóknum og listsköpun, veitir nemendum og starfsfólki ráðgjöf, leiðbeinir umsækjendum um fjármögnun verkefna og aðstoðar við umsóknarskrif. Einnig er það hlutverk rannsóknastjóra að þrýsta á yfirvöld um viðurkenningu og fjármagn til rannsóknatengdrar listsköpunar.
Mikilvægt hlutverk rannsóknaþjónustunnar er að leita markvisst tækifæra til nýrra verkefna og afla sambanda til samstarfs um rannsóknir í listum, hvort sem er hérlendis eða erlendis.
Forstöðumaður hefur umsýslu með Menntasjóði LHÍ sem og umsjón með gæðaeftirliti rannsóknastarfa innan skólans.
Rannsóknaþjónustan miðlar einnig niðurstöðum rannsókna sem stundaðar eru við skólann, og stendur að uppbyggingu rannsóknagagnabanka innan skólans.








