Rannsóknaverkefni

Verkefnið Stefnumót bænda og hönnuða fékk styrk úr Tækniþróunarsjóði haustið 2007, með loforði um 17 milljónir króna næstu þrjú árin. Verkefnið er samstarfsverkefni vöruhönnunardeildar Listaháskólans og íslenskra bænda í heimaframleiðslu. Verkefnisstjóri er Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í vöruhönnun, og kennarar eru Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir. Grafískur leiðbeinandi er Kristján Björn Þórðarsson. Verkefnið er unnið í samvinnu fjölda fyrirtækja og ráðgjafa.

Stefnumót bænda og hönnuða er frumkvöðlaverkefni í þágu atvinnulífsins þar sem tvær starfstéttir eru leiddir saman til að skapa einstaka afurð. Mikil sóknartækifæri felast í matvælaframleiðslu og með markvissri nýsköpun á hráefninu er hægt að margfalda virðisaukann. Í sérstöðu og upplifun felast mikil verðmæti, því er markmið verkefnisins að þróa héraðsbundnar matvörur byggðar á hæstu gæðum, rekjanleika og menningarlegri skírskotun. Nýnæmi verkefnisins felst í samstarfi hönnuða og bænda. Slíkt samstarf hefur ekki átt sér stað áður á Íslandi og ekki er vitað til þess að það hafi átt sér stað í öðrum löndum. Hér er á ferðinni mikið frumkvöðlastarf sem mun geta haft verulegt fordæmisgildi í framtíðinni. Í verkefninu er einni af elstu starfstéttum landsins, bændum, att saman við eina af yngstu starfsstéttunum, hönnuðum. Markmið verkefnisins er að þær afurðir sem verða þróaðar á næstu 3 árum skapi efnahagslegan ávinning og verði fyrirmyndir fyrir aðra bændur til að auka vægi nýsköpunar í framleiðslunni í samstarfi við hönnuði. Í litlu samfélagi eins og Íslandi eru fyrirmyndir mjög líklegar til að hafa margföldunaráhrif og við það styrkist samkeppnisstaða íslensks landbúnaðar verulega.

Söfnun upplýsinga um rannsókna- og samstarfsverkefni á vegum skólans stendur nú yfir og mun birtast í nýjum gagnabanka á heimasíðu skólans á haustönn 2009.