Samstarfsverkefni
Listaháskólinn leggur áherslu á að efla samvinnu við aðra háskóla í landinu, auk þess sem samstarf við fyrirtæki, atvinnulíf og aðrar stofnanir samfélagsins hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu misserum. Í þessu yfirliti má sjá samantekt yfir helstu samstarfsverkefni skólans, en listinn er ekki tæmandi.
Söfnun upplýsinga um rannsókna- og samstarfsverkefni á vegum skólans stendur nú yfir og mun birtast í nýjum gagnabanka á heimasíðu skólans á haustönn 2009.








