Menntasjóður Listaháskólans
Reglur
1. gr.
Stofna skal Námsmenntasjóð fastráðinna kennara Listaháskóla Íslands
Tekjur sjóðsins eru:
- Árleg fjárveiting stjórnar Listaháskóla Íslands.
- Aðrar tekjur, er sjóðnum kunna að hlotnast.
2. gr.
Hlutverk námsmenntasjóðs er að auðvelda fastráðnum kennurum Listaháskóla Íslands að sinna sérverkefnum í listgrein sinni og að sækja námsskeið eða endurmennta sig á sínu sérsviði.
Sérverkefni kennara geta verið verkefni sem tengjast listsköpun, rannsóknum og/eða kynningu á listgrein viðkomandi.
3. gr.
Stjórn námsmenntasjóðs skal skipuð rektor, sem jafnframt er formaður stjórnar, deildarforsetum og einum fulltrúa fastráðinna kennara, sem tilnefndur er af þeim til tveggja ára í senn.
4. gr.
Framkvæmdastjóri Listaháskóla Íslands sér um rekstur og vörslu námsmenntasjóðs í umboði stjórnar sjóðsins.
5. gr.
Rétt til að sækja um styrki úr sjóðnum hafa allir fastráðnir kennarar Listaháskóla Íslands. Auk þess hafa félög kennara við Listaháskólannn rétt til þess að sækja um styrki úr sjóðnum til þess að standa fyrir námskeiðum fyrir fastráðna kennara.
6. gr.
Stjórn sjóðsins skal auglýsa innan skólans eftir umsóknum um styrki.
Stjórn sjóðsins skal taka ákvörðun um hvernig styrkveitingum skal háttað og þ. á m. taka ákvörðun um hvernig þeim skal skipt á milli styrkja til sérverkefna kennara og styrkja til þess að sækja námskeið sem tengjast sérsviði þeirra. Þá getur stjórn sjóðsins að eigin frumkvæði lagt til fjármuni til námskeiðahalds innan skólans sem sérstaklega er ætlað kennurum hans og/eða starfsfólki.
7. gr.
Umsækjendur um styrki skulu láta fylgja umsókn sinni greinargóðar upplýsingar um þau verkefni eða námskeið sem liggja að baki umsókninni og yfirlit um það hvernig þeir hyggjast verja þeim fjármunum sem sóst er um að fá.
8. gr.
Reglur þessar eru settar á grundvelli 12. gr. reglna Listaháskóla Íslands og öðlast þegar gildi.
Þannig samþykkt af stjórn Listaháskóla Íslands þann 13. janúar 2000











