MYSCHOOL  /  VEFPÓSTUR  /  INNRI VEFUR  /  ENGLISH
  • NÁMIÐ
  • FÓLK
  • VERK
  • SKÓLINN
  • ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF
  • LEONARDO MANNASKIPTI
  • STYRKÞEGAR OG VERKEFNI

LEONARDO MANNASKIPTI

Frá árinu 2007 hefur Listaháskólinn stýrt fimm Leonardo mannaskiptaverkefnum í flokknum “ungt fólk á vinnumarkaði”. Markmið þessara verkefna er að styrkja nýútskrifaða nemendur skólans til starfsþjálfunar á evrópskum vinnumarkaði en ljóst er að þýðing slíkra styrkja hefur margfaldast á tímum vaxandi atvinnuleysis.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB styrkir árlega aðeins hluta þeirra umsækjenda sem senda inn verkefnisumsóknir en aðeins fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki til landskrifstofu.  Það er skólanum sönn ánægja að hafa orðið fyrir valinu með verkefni sín og nú þegar hafa tuttugu útskrifaðir nemendur notið góðs af starfsþjálfun erlendis með aðstoð Leonardo mannaskiptastyrkja.

Leonardo mannaskiptastyrkur hljóðar uppá 1500 - 2000 evrur í styrk fyrir fyrstu tvær vikurnar og 150 - 220 evrur á viku eftir það. LHí býður útskrifuðum nemendum sínum uppá styrki til fjögurra til sextán vikna starfsþjálfunar. Upphæð styrkja ákvarðast m.a. af dvalarstað en styrkur fyrir 12 vikna dvöl í Bretlandi nemur t.a.m. 4200 evrum. Að auki er hægt að sækja um undirbúningsstyrk til tungumálanáms.

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum um framboð og fyrirkomulag styrkja er bent á að hafa samband við Ölmu Ragnarsdóttur verkefnisstjóra í síma 545-2205 eða í gegnum netfangið alma@lhi.is

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur og styrkþega

Letter of Intent (2012)

Training agreement (Fyrstu síðuna má fylla út rafrænt með Acrobat Reader eða Preview)

Leonardo verkefni Listaháskólans:

2012 - 2013: „Moving Skills in Art and Design II“

Verkefnið hlýtur styrk að upphæð 41.458 €.  Stefnt er á að styrkja 10 - 15 útskrifaða nemendur til að sækja 4ra - 16 vikna starfsþjálfun á evrópskum vinnumarkaði.  

2011-2012: „Moving Skills in Art and Design“

Verkefninu var úthlutaður styrkur að upphæð 18.012 €.  Stefnt er að því að senda 4-6 styrkþega í fjögurra til tólf vikna starsfþjálfun. 

2010-2011: “Art and Design in Post-crisis Environment”

5 útskrifaðir nemendur á sviði arkitektúrs, hönnunar, myndlistar, tónlistar og leiklistar hlutu styrk til starfsþjálfunar í Danmörku, Finnlandi, Hollandi og Noregi.

2009-2010: “New Skills and Training in Art and Design”

8 útskrifaðir nemendur á sviði hönnunar, myndlistar, listkennslu og sviðslista hlutu styrk til starfsþjálfunar í Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð og á Ítalíu og Bretlandi.

2007-2009: “Training in Design and Architecture”

6 útskrifaðir nemendur á sviði hönnunar og arkitektúr hlutu styrk til starfsþjálfunar í London, Kaupmannahöfn og París.

Upplýsingar um styrkþega og verkefni þeirra

Listi yfir móttökuaðila

LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS
Þverholti 11, 105 Reykjavík | Sími 552 4000 | Fax 552 3629 | lhi@lhi.is
Þverholti 11
105 Reykjavík
Sími 552 4000
Fax 552 3629
hafdis@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
estherj@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2417
Fax 520 2409
svanborg@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2400
Fax 520 2409
helgapalina@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
soleybjort@lhi.is
HÖNNUN & ARKITEKTÚR
LEIKLIST & DANS
LISTKENNSLA
MYNDLIST
TÓNLIST