Nordplus Music Menntaáætlunin veitir styrki til ýmis konar samvinnu á sviði menntamála
á því svæði sem Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin mynda með áherslu á
gæði og nýsköpun. Samstarf þetta er byggt upp á samstarfsnetum
ákveðinna fræðasviða og felur m.a. í sér styrkveitingu til nemenda- og
kennaraskipta, sameiginlegs námskeiðahalds eða uppbyggingu sameiginlegra
námsbrauta.
Þau lönd sem taka þátt í Nordplus eru Danmörk, Eistland, Finnland,
Færeyjar, Grænland, Ísland, Lettland, Litháen, Noregur og Svíþjóð.