Nemendum Listaháskólans stendur til boða að sækja um skiptinám og fá það metið til eininga sem hluta af sínu námi. Miðað er við að nemendur séu í skiptinámi að hámarki eina önn og að farið sé út á vormisseri annars árs eða haustmisseri þess þriðja. Nemendur skulu hafa lokið 90 einingum áður en skiptinám hefst.
Ljúka þarf minnst 90 einingum áður en skiptinám hefst og jafnframt þurfa nemendur að hljóta samþykki sinnar deildar fyrir áætlunum sínum. Á námsbrautunum fræði og framkvæmd og dansi er skiptinám hluti af skyldueiningum náms. Á þeim brautum fara allir nemendur í skiptinám eða starfsnám erlendis á haustmisseri þriðja árs. Í öðrum námsgreinum er þetta val sérhvers nemanda en Listaháskólinn hvetur nemendur til að íhuga þann kost gaumgæfilega.
Hvers vegna?
Að fara í skiptinám er einstakt tækifæri til að öðlast nýja sýn og kynnast menningu og samfélagi annarrar þjóðar. Nemendur sem fara í skiptinám fá tækifæri til að mynda ný tengsl sem kunna að vara lengi eða jafnvel alla ævi. Ljóst er að þeir sem velja þá leið að fara í skiptinám eru reynslunni ríkari þegar kemur að því að sækja um framhaldsnám eða önnur störf erlendis síðar á lífsleiðinni. Jafnframt eru gerðar síauknar kröfur um reynslu og þáttöku í alþjóðlegu samstarfi á evrópskum vinnumarkaði
Hvert?
Listaháskólinn er í samstarfi við á annað hundrað háskóla á sviði lista í Evrópu og vinnur jafnframt að því að fjölga samstarfsskólum í öðrum heimshlutum. Tvenns konar styrkir bjóðast til stúdentaskipta, Nordplus fyrir skiptinám í samstarfsskólum LHÍ á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum og Erasmus fyrir stúdentaskipti til aðildarríkja Evrópusambandsins. Nemendum er velkomið að skoða önnur tækifæri til nemendaskipta og kynna þær hugmyndir fyrir alþjóðafulltrúa og fagstjóra en hafa ber í huga að ólíklegt er að skiptinám utan Evrópu sé styrkhæft.
Listi yfir skóla með Erasmus Charter (skjal nr.4)
Þegar kemur að því að velja áfangastað fyrir skiptinám er farsælast að hafa eftirfarandi atriði í huga:
-að viðkomandi land eða borg sé spennandi áfangastaður
-að þar sé öflugt menningar- og listalíf
-að tungumálið sé þér annað hvort kunnugt eða þú sért tilbúin(n) til að nema það að einhverju marki
-að viðkomandi skóli bjóði námskeið og umhverfi sem þú sækist eftir
Ein önn er stuttur tími og því er náminu sem slíku ákveðin takmörk sett. Viðhorfskannanir um skiptinám hafa sýnt að það er ekki síst staðsetningin sem er stýrandi þáttur í því hversu ánægður nemandinn er með dvölina.
Hvernig?
Alþjóðafulltrúi Listaháskólans heldur kynningarfundi með nemendum í öllum deildum skólans á hverri önn. Í stuttu máli sagi er umsóknarferli skiptinámsins þríþætt:
1. sækja þarf um Erasmus eða Nordplus styrk til ferðarinnar
2. sækja þarf um leyfi deildar með rafrænni umsókn í MySchool
3. skila þarf inn umsókn til gestaskóla
Umsókn til gestaskóla þarf m.a. að innihalda sýnishorn af verkum nemanda, ferilskrá og stutt persónulegt bréf sem lýsir því af hverju sótt er um viðkomandi stað. Umsóknarfrestur er misjafn eftir skólum og námsbrautum. Almennt ber nemendum í hönnunar- og arkitektúrdeild, myndlistardeild og leiklistardeild að skila umsóknum sínum til gestaskóla á námsönninni fyrir brottför eða í kringum 1.okt.-31.nóv. fyrir skiptinám á vorönn og á tímabilinu 15.mars - 30.apríl fyrir skiptinám á haustönn. Nemendur í tónlistardeild þurfa að skila umsókn til gestaskóla á tímabilinu 1.mars- 30.apríl hvort sem um ræðir skiptinám á haust- eða vorönn. Umsóknir skal senda í samráði við alþjóðafulltrúa Listaháskólans sem skrifar fylgibréf með umsókn og heldur utan um samskipti við gestaskólann.