MYSCHOOL  /  VEFPÓSTUR  /  INNRI VEFUR  /  ENGLISH
  • NÁMIÐ
  • FÓLK
  • VERK
  • SKÓLINN
  • ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF
  • UM ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF
  • SKIPTINÁM
  • NORDPLUS
  • ERASMUS
  • SAMSTARFSSKÓLAR
  • LEONARDO MANNASKIPTI

UM ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF

Listaháskólinn tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Skólinn er aðili að tveimur viðamiklum samskiptaáætlunum, Nordplus menntaáætlun Norðurlandaráðs og Menntaáætlun Evrópusambandsins. Báðar þessar áætlanir byggjast á kennara- og nemendaskiptum auk annarra samvinnuverkefna. Menntaáætlun Evrópusambandsins skiptist niður í 6 áætlanir en Listaháskólinn sækir árlega styrki í tvær þeirra, Erasmus og Leonardo. Listaháskólinn hefur gert tvíhliða samning við yfir 100 háskóla í Evrópu á vegum Erasmus LLP menntaáætlunarinnar en þar fyrir utan eru samstarfsskólar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum alls 90 talsins.

Nemendur, kennarar og annað starfsfólk geta sótt um styrki gegnum menntaáætlanirnar. Alþjóðafulltrúi LHÍ leggur áherslu á að aðstoða nemendur við að sækja um sem skiptinemar í erlendum samstarfsskólum í eina önn. Í upphafi hverrar annar eru haldnir kynningarfundir í hverri deild um þá möguleika sem stendur nemendum til boða, umsóknarferli o.fl. Einnig aðstoðar alþjóðafulltrúi starfsfólk og kennara sem sækja um styrki til starfs- og kennaraskipta.

Listaháskólinn tekur einnig virkan þátt í eftirtöldum samtökum og samstarfsnetum:

ELIA samtök listaháskóla í Evrópu

AEC samtök Evrópskra tónlistarháskóla

Cumulus alþjóðleg samtök hönnunarháskóla

EAAE samstarfsnet háskóla í Evrópu á sviði arkitektúrs

PARADOX samtök háskóla í Evrópu á sviði sjónlista

E:UTSA samtök sviðslistaskóla í Evrópu

Alþjóðafulltrúi Listaháskólans er: Alma Ragnarsdóttir, s. 545 2205

Alþjóðafulltrúi hefur yfirumsjón með alþjóðasamskiptum Listaháskólans, nemenda- og kennaraskiptum.

Viðtalstími er frá kl.10.00-14.00 alla virka daga.
Auk þess hefur alþjóðafulltrúi fasta viðveru í tónlistardeild fyrsta þriðjudag hvers mánaðar frá kl.10.00 - 14.00 og í myndlistardeild fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá 10.00-14.00.

LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS
Þverholti 11, 105 Reykjavík | Sími 552 4000 | Fax 552 3629 | lhi@lhi.is
Þverholti 11
105 Reykjavík
Sími 552 4000
Fax 552 3629
hafdis@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
estherj@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2417
Fax 520 2409
svanborg@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2400
Fax 520 2409
helgapalina@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
soleybjort@lhi.is
HÖNNUN & ARKITEKTÚR
LEIKLIST & DANS
LISTKENNSLA
MYNDLIST
TÓNLIST