Félög og nefndir
Ýmis félög og nefndir starfa innan Listaháskóla Íslands. M.a. má nefna Úrskurðarnefnd um réttindamál nemenda sem starfar samkvæmt starfsreglum og jafnréttisnefnd sem skipuð er fulltrúum allra deilda.
Félag um Listaháskóla Íslands var stofnað 1995 með það að markmiði að stofna Listaháskóla á Íslandi. Starfsmannafélag LHÍ var stofnað 2006 með það að markmiði að efla samstarf starfsmanna og stuðla að góðum kynnum þeirra á milli.







