Félag um LHÍ
Félagið
Félag um Listaháskóla Íslands var stofnað 1995 með það að markmiði að vinna að stofnun listaháskóla á Íslandi. Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á, að það fólk sem mótar stefnuna í hönnunar- og listmenntun á háskólastigi, komi úr röðum fagfólks á þessum sviðum.
Auk þriggja manna sem Félag um Listaháskóla skipar í stjórn skólans, eru tveir skipaðir af menntamálaráðuneytinu. 176 manns eru á félagaskrá.
Árlegt félagsgjald er kr. 1800.
Hægt er að leggja inn á reikning félagsins í Byr sparisjóði.
Banki: 1135 Hb: 26 Reikningur: 5862
Kennitala: 5704962479
Markmið
Í samþykktum fyrir Félag um Listaháskóla Íslands segir m.a.:
Félagið heitir Félag um Listaháskóla Íslands og er markmið þess að efla og styrkja Listaháskóla Íslands með því að vera listrænn, fjárhagslegur og stjórnunarlegur bakhjarl skólans. Félagið velur þrjá menn í stjórn skólans. Það skal vera vettvangur umræðu um stefnu skólans og standa fyrir fjáröflun í þágu hans eftir því sem unnt er.
Starfsemi
22.apríl 2005 hélt félagið vel sóttan fund um byggingamál LHÍ, ávörpuðu menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Hjálmar H. Ragnarson rektor fundinn og svöruðu fyrirspurnum. Með þessu framtaki félagsins ávannst það, að ráðherra lýsti því yfir opinberlega að byggingamál LHÍ væri nú forgangsmál.
Á aðalfundi sem haldinn var strax á eftir var samþykkt áskorun til stjórnar skólans, borgarstjórnar og menntamálaráðherra, þess efnis; að málsaðilar taki nú höndum saman og leysi húsnæðisvandræði Listaháskóla Íslands, að öðrum kosti nái hann ekki þvi markmiði sínu að vera áfram suðupottur nýrra hugmynda þar sem ólíkar listgreinar starfa umdir sama þaki.
Samþykkt var að efna til og styrkja útgáfu fræðirits sem verði umræðuvettvangur um liststarfsemi og rannsóknir í skólanum. Stofna á vinnuhóp á vegum félagsins og LHÍ til að móta hugmyndir um útgáfuna.
Félagið hefur ákveðið að skólanum verði færð gjöf þegar hann hefur fengið varanlegan samastað.
Stjórnarmenn LHÍ flytja skýrslu um málefni skólans á aðalfundum félagsins.
Á sameiginlegum fundum stjórnar félagsins með stjórnarmönnum LHÍ hafa húsnæðismál borið helst á góma á undanförnum árum.
Til að fjölga félagsmönnum og efla félagið, er útskriftarnemum skólans boðin frí félagsaðild næstu 3 árin eftir útskrift. Jafnt og þétt hafa fyrrverandi nemendur LHÍ verið að bætast á félagalistann.
Samkomulag um kynningarmál er við LHÍ, sem m.a. felst í því að skólinn sendir félagsmönnum boð og tilkynningar um viðburði í skólanum og fundi á vegum félagsins og birti upplýsingar um félagið á heimasíðu.
Stjórnir
Félag um Listaháskóla kýs á aðalfundi bæði í stjórn félagsins og í stjórn Listaháskólans. Stjórnarmenn félagsins eru kosnir til 2ja ára en kosið er í stjórn LHÍ til 3ja ára.
Stjórn Félags um Listaháskóla Íslands: flhi@lhi.is
Jóhann Sigurðsson, arkitekt, formaður stjórnar
Kristinn E. Hrafnsson, myndlistarmaður
Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður
Sigurþór A. Heimisson, leikari
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur
Stjórnarmenn í stjórn LHÍ skipaðir af Félagi um LHÍ:
Anna Líndal, myndlistarmaður
Kolbeinn Einarsson, tónskáld
Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt












