Jafnréttisnefnd
Jafnréttisnefnd Listaháskólan Íslands hefur umsjón með þróun, útfærslu og eftirfylgni Jafnréttisáætlunar skólans.
Nefndin er skipuð fulltrúum nemenda og starfsmanna úr öllum deildum skólans.
Hlutverk
Að láta framkvæma reglubundnar kannanir á stöðu kynjanna innan skólans, kynna niðurstöður þeirra fyrir nemendum og starfsmönnum og standa fyrir öflugri umræðu um jafnréttismál.
Að standa fyrir könnun á tíðni kynferðislegrar áreitni innan Listaháskóla Íslands og kynna niðurstöðuna nemendum og starfsfólki. Upplýsingar um úrræði og leiðbeiningar til þolenda kynferðislegrar áreitni skulu koma fram í handbókum skólans og á heimasíðu hans.











