Starfsmannafélag

Starfsmannafélag Listaháskóla Íslands var stofnað 29. mars 2006. Félagar þess eru bæði fastráðnir og lausráðnir starfsmenn skólans.

Starfsmannafélagið starfar samkvæmt starfsmannastefnu skólans.

Markmið
Markmið félagsins er að efla samstarf starfsmanna, stuðla á góðum kynnum þeirra á milli og stuðla að góðum anda á vinnustað. Einnig að efla réttindi og skyldur starfsmanna og taka þátt í að móta starfsmannastefnu, skipa trúnaðarmann o.fl.

Stjórn
Fimm manna stjórn er kosin á aðalfundi félagsins. Stjórnina skipa: formaður, gjaldkeri, ritari og tveir meðstjórnendur. Þá eru kosnir tveir varamenn. Stjórnin er kosin til eins árs í senn en formaður til 2. ára.
Skemmtinefnd er ennfremur kosin á aðalfundi félagsins.

Eftirfarandi aðilar hlutu kosningu á aðalfundi félagsins 23. október 2009:

Stjórn starfsmannafélags Listaháskóla Íslands
Ágúst Loftsson, formaður
Margrét Rún Guðmundsdóttir, gjaldkeri
Sigurþór Heimisson, ritari

Skemmtinefnd starfsmannafélags Listaháskóla Íslands:
Ásthildur Björg Jónsdóttir
Riina Pauliina Finnsdóttir

Trúnaðarmaður starfsmanna: Sigrún Sveinsdóttir

Félagsgjöld fyrir árið 2009 eru 1.800 kr. á önn. Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Þorbergsson gjaldkeri félagsins.