Úrskurðarnefnd
Úrskurðarnefnd um réttindamál nemenda Listaháskóla Íslands er æðsti úrskurðaraðili innan skólans í agamálum og málum er varða réttindamál nemenda. Nánar tiltekið er um að ræða mál varðandi:
a. námsmat, þ.m.t. fyrirlögn prófa, tilhögun einkunnagjafar, skipun prófdómara, birtingu einkunna.
b. mat á námsframvindu, þ.m.t. rétt til endurtökuprófs.
c. afgreiðslu umsókna um skólavist þ.m.t. tilhögun mats á námi á milli skóla.
d. ákvörðun rektors um að víkja nemanda úr skóla vegna agabrota.
Úrskurðarnefnd starfar samkvæmt starfsreglum.
Skipan skólaárið 2011 -2012:
Aðalmenn:
Mist Þorkelsdóttir, forseti tónlistardeildar, formaður
Ólafur Sveinn Gísladóttir, prófessor í myndlist
Sighvatur Halldórsson, nemi í grafískri hönnun
Varamenn:
Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar
Magnús Þór Þorbergsson, lektor í tónlistar- og dansdeild
Steinunn Lilja Emilsdóttir, nemandi í myndlist











