Gæðakerfi

Listaháskólinn kappkostar að efla gæði menntunar og listsköpunar/rannsókna í samræmi við stefnumið sín. Þetta gerir skólinn með ýmsum hætti, bæði formlega og óformlega.

Skýrar reglur eru settar um alla þætti skólastarfsins, samráð stjórnenda  skólans, starfsfólks, kennara og nemenda er tryggt með margþættu funda- og viðræðukerfi, upplýsingum er dreift skilmerkilega og eftir ákveðnum leiðum, og náið eftirlit er haft með kennslu og þjónustu sem skólinn veitir.

Helstu verkferlum er lýst í Gæðahandbók skólans, og upplýsingum um starfsemina, rétt og skyldur nemenda og starfsmanna, framgang og kröfur, er komið á framfæri í handbókum skólans sem endurnýjaðar eru árlega.

Skýrslur frá fundum rektors með nemendum eru birtar á innri vef skólans

Tölfræði

Viðurkenningarferli

Úttekt menntamálaráðuneytis á rekstri og stjórnun LHÍ

Könnun á náms- og starfsferli útskrifaðra frá LHÍ - útskriftarhópar 2003 og 2006

Könnun á náms- og starfsferli útskrifaðra frá LHÍ - útskriftarhópar 2004 og 2007