Fundir rektors
Fundir rektors með nemendum hafa þann tilgang styrkja tengsl nemenda við stjórnendur skólans og gera skólanum kleift að fylgjast með gæðum náms og þjónustu stoðsviða. Það er rektor sem boðar til fundanna og stjórnar þeim. Fundirnir eru haldnir snemma á hverju vormisseri, yfirleitt í febrúar.
Einn hópur nemenda er boðaður til hvers fundar, árgangur í viðkomandi deild eða allir nemendur á sömu námsbraut. Deildarforseti viðkomandi deildar situr jafnframt fundina auk framkvæmdastjóra og forstöðumanni háskólaskrifstofu.
Á fundunum ræðir rektor við nemendur um skipulag og inntak námsins, kennsluna og hlutverk kennaranna, en einnig atriði eins og aðbúnað, þjónustu, félagsstarfsemi, og innbyrðis tengsl kennara, nemenda og stjórnenda skólans.
Rektor tekur niður punkta um það helsta sem kemur fram á fundunum, og eru skýrslur hans kynntar fyrir kennurum og stjórnendum skólans.











